Borgarstjóri í Úkraínu varð fyrir skoti Guðsteinn Bjarnason skrifar 28. apríl 2014 11:00 Vopnaður aðskilnaðarsinni fyrir utan stjórnsýslubyggingu í borginni Slavjansk. Nordicphotos/AFP
Hennadí Kernes, borgarstjóri í Kharkív í austanverðri Úkraínu, varð fyrir skoti í morgun. Skotið kom í bakið og reyna læknar nú að bjarga lífi hans, að því er fram kemur í tilkynningu frá skrifstofu hans. Kernes var stuðningsmaður Viktors Janúkóvits forseta, sem hrökklaðist frá völdum í vetur. Hann hefur hins vegar ekki stutt aðskilnaðasinna í austanverðu landinu heldur vill halda Úkraínu óskiptri. Kharkív er næst stærsta borg Úkraínu. Aðskilnaðarsinnar hafa verið með stjórnsýslubyggingar í borginni á sínu valdi undanfarið, rétt eins og í fleiri borgum í austanverðu landinu. Aðskilnaðarsinnar hafa síðan á föstudag haft hóp erlendra eftirlitsmanna frá Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu, ÖSE, á sínu valdi. Þeir saka eftirlitsmennina um njósnir á vegum NATO. Einn þeirra var látinn laus í gær, en hinir sjö eru enn í haldi uppreisnarmanna. Steffen Seibert, talsmaður Angelu Merkel Þýskalandskanslara, fordæmdi gíslatökuna harðlega í morgun og hvetur Rússa til að grípa nú til sinna ráða til að fá mennina látna lausa. Jafnframt skorar hann á Rússa að tala hreint út um að þeir styðji ekki þessa gíslatöku.
Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins Sjá meira