David Attenborough hvergi nær hættur en kominn með nóg af órökstuddu bulli Andri Þór Sturluson skrifar 13. febrúar 2014 12:56 David Attenborough.
David Attenborough er kominn með nóg af fáfræði sköpunarsinna, stóriðjusinna og þeim sem gera lítið úr hlýnun jarðar. Þessi virti heimildarþáttagerðamaður og náttúruvinur sem lengi vel blandaði sér ekki í deilumál til að halda fókusnum á störfum sínum en ekki skoðunum, segir það sorglegt að fólk viðurkenni ekki sönnunargögn og viðhaldi órökstuddu bulli, í nýlegu viðtali við The Daily Beast. Attenborough sem eitt sinn lýsti sjáfum sér sem skoðanalausum þáttagerðarmanni, er nú loksins orðinn nægilega pirraður á fáfræði og skeytingarleysi gagnvart náttúrunni og vísindum til að koma fram opinberlega og segja menn vera í ruglinu. „To simply say that you must accept unquestioningly what you learned at your mother’s knee is not the act of an intelligent person,“ segir hann á þá bæði við stóriðjusinna og þá sem neita þróunarkenningunni.Attenborough í þekktustu heimildarþáttunum sínum: Leyndardómar Framsóknarflokksins. Hann hefur einnig áhyggjur af því að menn samþykki ekki hlýnun jarðar af mannavöldum þó þeir í raun viti betur. Segir skammtíma gróðasjónarmið ráða oft ferðinni og þá skiptir engu máli að komandi kynslóðir þurfa að glíma við afleiðingarnar og þær jafnvel reynast þeim ofviða. En góðu fréttirnar eru þær að Attenborough er langt frá því að vera á þeim buxunum að láta af störfum. Hann er með nýja þáttaröð, Natural Curiosities, og segist muni halda áfram að kynna okkur náttúruna þangað til fætur hans gefa sig.
Harmageddon Loftslagsmál Mest lesið Kontinuum á toppi Pepsi Max lista X977 Harmageddon Ísland í röngu tímabelti Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon Queens of the Stone Age enn á toppi Pepsi Max listans Harmageddon „Listamenn eru ekki að græða neitt“ Harmageddon Sannleikurinn: Stöðumælaverðir segja stöðuna aldrei hafa verið eins slæma Harmageddon Styttur Reykjavíkur fá ný heyrnartól Harmageddon Vill að forystan axli ábyrgð og segi af sér Harmageddon 5 bestu Eurovision-lögin sem unnu ekki undankeppnina á Íslandi Harmageddon „Besta veganesti sem hægt er að gefa barni að biðja með því“ Harmageddon