Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu, í samstarfi við lögregluembætti annarsstaðar á landinu hefur í dag og í gær unnið eftir vísbendingum um flótta hjúkrunarfræðings frá Landspítalanum í fyrradag, en án árangurs.
Hjúkrunarfræðingurinn heitir Eyrún Jónsdóttir og er að vinna illa launaða vaktavinnu á slysadeild. Eyrún er 171 semtímetri á hæð, grannvaxin, í hvítum sjúskuðum slopp, ljótum grænum buxum og í slitnum strigaskóm. Talið er að Eyrún hafi flúið vegna lágra launa, mikils álags og óánægju með vaktakerfið.
Forstjóri Landspítalans, Páll Matthíasson, segir að alltaf sé möguleiki á stroki. „Það er enginn spítali þannig byggður að það sé algjörlega útilokað að starfsmenn strjúki. En það sem við getum gert, er að auka líkurnar á að það gerist ekki. Lengi vel var engin áhersla á öryggismál í heilbrigðiskerfinu, en það hefur verið að breytast á síðustu árum," segir hann, og vísar meðal annars til hagræðingar sem eru í gangi á deildum og byggingu nýs hátæknisjúkrahúss.
Lögreglan óskar eftir upplýsingum um ferðir hjúkrunarfræðingsins í síma 4-10-80-80.
Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem er undirmönnuð og fjársvelt.
