Hedin neitar að gefast upp Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2014 17:41 Robert Hedin á hliðarlínunni í dag. Mynd/Daníel
Robert Hedin, landsliðsþjálfari Noregs, var gagnrýndur eftir tap hans manna gegn Íslandi á fyrsta leik EM í handbolta í dag.Ísland vann, 31-26, eftir að hafa náð sex marka forystu á tíundu mínútu leiksins. Norðmenn náðu mest að minnka muninn í þrjú mörk eftir það. Þrjú lið af fjórum komast áfram í milliriðlakeppnina en Hedin sagðist eftir leik enn vongóður um að Norðmenn kæmust áfram. „Við erum ekki búnir að mála okkur út í horn,“ sagði Hedin við TV2 í Noregi. „Við eigum enn góðan möguleika gegn bæði Ungverjalandi og Spáni.“ „Þetta verður bara erfiðara og erfiðara en við verðum að halda áfram að berjast og reyna að vinna næstu tvo leiki. Við munum sjá hvar við stöndum eftir þá. Við munum gera okkar besta,“ sagði skyttan Harald Reinkind eftir leikinn en hann skoraði sex mörk í dag. Hedin var nokkuð gagnrýndur af sérfræðingum norska sjónvarpsins. Bent Svele hjá TV2 sagði að Hedin hefði gert dýrkeypt mistök í lok leiksins. „Robert Hedin gerði slæm mistök með því að nota ekki Erlend Mamelund í sókninni,“ sagði Svele. Norðmenn mæta næst heimsmeisturum Spánverja á miðvikudaginn en Ísland mætir þá Ungverjalandi.
EM 2014 karla Mest lesið Mick Schumacher gaf sjaldgæfa innsýn inn í líf föður síns Formúla 1 Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti Miklu fleiri bakteríur í ræktinni en á klósettsetunni Sport United menn á allt öðrum og betri stað eftir inngrip Van Nistelrooy Enski boltinn Jafntefli sem gerir lítið fyrir bæði lið Enski boltinn Uppgjörið: Ísland - Rúmenía 77-73 | Fyrsti sigur íslenska liðsins í tvö ár Körfubolti Liverpool hefur áhyggjur af meiðslunum hjá Trent Enski boltinn Orri Steinn spilaði hálftíma í sigri á toppliði Barcelona Fótbolti „Ég bað ekki um fjögur stig en fékk fjögur stig“ Sport Nýliðarnir sóttu þrjú stig til Tottenham og Newcastle skellti Forest Enski boltinn Fleiri fréttir Andrea öflug í sigri á Söndru og stöllum í Metzungen Dana klikkaði ekki á skoti en Volda tapaði stigi Annar sannfærandi sigur hjá lærisveinum Alfreðs Gísla Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Frábær þriggja marka sigur Vals Botnliðið sótti tvö stig út í Eyjar Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - Fram 18-24 | Framkonur góðar í Garðabæ Rakel Dögg: Þá eru meiri líkur á sigri Haukar sóttu sigur á Suðurlandið Má búast við hasar í hörkuverkefni Gísli Þorgeir ekki með gegn Georgíu Sonur þjálfarans er markahæstur í Olís deildinni Galdraskot Óðins vekur athygli Öruggur sigur hjá lærisveinum Alfreðs í fyrsta leik í undankeppni EM Utan vallar: Fegurðin í því frumstæða Hrósar Þorsteini í hástert: „Erum búnir að vera að bíða eftir honum“ „Ég fékk bara fullt skotleyfi“ ÍBV, Stjarnan og Grótta áfram eftir útisigra Uppgjörið: Ísland - Bosnía 32-26 | Leiðin á EM hefst á sigri Grikkland lagði Georgíu með minnsta mun Snorri missir ekki svefn, ennþá Segir æðislegt að fá Aron til sín Valskonur óstöðvandi „Þessi vika er gríðarlega mikilvæg“ Frestað vegna veðurs Sjáðu mergjaða línusendingu Viggós Eldamennskan stærsta áskorunin Mestu vonbrigði Þóris þegar stelpurnar hans sýndu vanvirðingu Fram flaug áfram í bikarnum Sigurjón hættur með Gróttu Sjá meira
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti
Uppgjörið: Georgía - Ísland 25-30 | Íslenska liðið spýtti í lófana og gerði nóg í Georgíu Handbolti