Um er að ræða pistil sem Fricke skrifaði á síðuna, þar sem hann gerir upp árið 2013. Þar fór hann fögrum orðum um bókina en í henni er íslensk tónlistarsaga gróflega rakin. Fricke kemur árlega til landsins til að vera viðstaddur Iceland Airwaves-hátíðina.
„Ég hitti hann á síðustu Airwaves-hátið en þekki hann afskaplega lítið. Hann kom fyrst hingað til lands árið 1988 til að taka viðtal við Sykurmolanna,“ útskýrir Doktor Gunni.
Í sama pistli talar Fricke um eftirminnileg augnablik á árinu sem hann upplifiði, en á meðal þeirra eru tónleikar Bruce Springsteens og The E Street Band á Ítalíu, hans síðasta viðtal við Lou Reed sem lést á árinu og tónleikar Brians Wilsons og Jeff Becks í Beacon-leikhúsinu í New York.
Bókina skrifaði Doktorinn fyrir útlendinga, svo þeir gætu fræðst um okkar dásamlegu tónlistarmenningu- og sögu en hún kom einmitt út um það leyti þegar Fricke var staddur á landinu.
„Ég er mjög ánægður með þetta, því það erfitt að koma svona bók á framfæri erlendis, því eins og er er hún eingöngu seld í búðum á Íslandi og í gegnum netið“ bætir Doktorinn við. Bókin er nokkurs konar samantekt úr bókinni Stuð vors lands eftir Doktor Gunna en hún kom út árið 2012.
Pistil David Fricke má lesa í heild sinni hér.