Tilkynnt hefur verið hverjir hljóta tilnefningu til BAFTA-verðlaunanna sem veitt verða þann 16. febrúar.
Kvikmyndin Gravity fær flestar tilnefningar eða ellefu talsins. Er hún meðal annars tilnefnd í flokki bestu mynda, bestu handrita, auk þess sem leikstjóri hennar, Alfonso Cuarón er tilnefndur í flokki leikstjóra. Þá er Sandra Bullock, aðalleikkona myndarinnar, tilnefnd fyrir frammistöðu sína, en mikið mæðir á henni þar sem hún er ein í mynd nær allan tímann.
Myndirnar 12 Years a Slave og American Hustle fá tíu tilnefningar hvor og kvikmyndin Captain Phillips fær níu. Allar eru þær tilnefndar í flokki bestu mynda og leikstjórar þeirra tilnefndir í leikstjóraflokknum.
BAFTA-verðlaunin eru verðlaun bresku sjónvarps- og kvikmyndaakademíunnar og hafa stundum verið kölluð bresku Óskarsverðlaunin, en tilnefningar til BAFTA-verðlauna þykja oft gefa nasaþefinn af því sem koma skal á sjálfri Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fer í mars.
Tilnefningar í helstu flokkum:
Besta mynd:
12 Years a Slave
American Hustle
Captain Phillips
Gravity
Philomena
Besta leikkona í aðalhlutverki:
Amy Adams (American Hustle)
Cate Blanchett (Blue Jasmine)
Emma Thompson (Saving Mr. Banks)
Judi Dench (Philomena)
Sandra Bullock (Gravity)
Besti leikari í aðalhlutverki:
Bruce Dern (Nebraska)
Chiwetel Ejio (12 Years a Slave)
Christian Bale (American Hustle)
Leonardo DiCaprio (The Wolf of Wall Street)
Tom Hanks (Captain Phillips)
Besta leikkona í aukahlutverki:
Jennifer Lawrence (American Hustle)
Julia Roberts (August: Osage County)
Lupita Nyong’o (12 Years a Slave)
Oprah Winfrey (The Butler)
Sally Hawkins (Blue Jasmine)
Besti leikari í aukahlutverki:
Barkhad Abdi (Captain Phillips)
Bradley Cooper (American Hustle)
Daniel Brühl (Rush)
Matt Damon (Behind the Candelabra)
Michael Fassbender (12 Years a Slave)
Besti leikstjóri:
Steve McQueen (12 Years a Slave)
David O. Russell (American Hustle)
Paul Greengrass (Captain Phillips)
Alfonso Cuarón (Gravity)
Martin Scorsese (The Wolf of Wall Street)
Besta frumsamda handrit:
American Hustle
Blue Jasmine
Gravity
Inside Llewyn Davis
Nebraska
Besta handrit byggt á áður útgefnu efni:
12 Years a Slave
Behind the Candelabra
Captain Phillips
Philomena
The Wolf of Wall Street
Besta breska mynd:
Gravity
Mandela: Long Walk to Freedom
Philomena
Rush
Saving Mr. Banks
The Selfish Giant
Besta mynd á öðru tungumáli en ensku:
The Act of Killing
Blue is the Warmest Colour
The Great Beauty
Metro Manila
Wadjda
Besta heimildarmynd:
The Act of Killing
The Armstrong Lie
Blackfish
Tim’s Vermeer
We Steal Secrets: The Story of Wikileaks
Besta teiknimynd:
Despicable Me 2
Frozen
Monsters University
Gravity með flestar tilnefningar til BAFTA-verðlaunanna
