Orðrómur hefur verið á kreiki um að ákveðnir höfundar hafi fengið undanþágur á skilatíma inn í keppnina og hafi hreinlega átt gulltryggt sæti í undankeppninni. „Engum var lofað þátttöku, en þetta bar engu að síður ágætan árangur, því nokkur þeirra laga rötuðu alla leið í tíu laga úrtakið. Ekki verður gefið upp hver þau eru né hversu mörg,“ útskýrir Hera.
Sérstaklega samansett valnefnd, skipuð þremur körlum og þremur konum, valdi lögin. „Á hverju ári er nýtt fólk í nefndinni,“ bætir Hera við.
Valnefndin fékk einungis lögin sjálf í hendurnar en höfundur var ekki tekinn fram þegar nefndin fékk lögin í hendurnar. „Svo skilaði hver meðlimur nefndarinnar inn lagi og vissi þá ekki hver höfundar lagsins var.“
Ákveðnar áherslubreytingar verða á keppninni í ár en einungis tíu lög komust áfram í undankeppnina. „Við höfum skorið jafnt og þétt niður undanfarin ár en dagskrárgerðin verður ekki síðri.“ Í fyrra voru tólf lög í undankeppninni og fimmtán lög þar á undan. Aldrei hafa fleiri lög borist í keppnina en í ár eða 297 lög.
Undankeppnin fer fram í Háskólabíói 1. og 8. febrúar og svo fara úrslitin fram hinn 15. febrúar.