Gjafabréf í Fish Spa Iceland í pakkann 10. desember 2013 00:00 Hallgrímur Andri Ingvarsson við fiskabúrin þar sem Garra Rufa-fiskarnir svamla um í góðu yfirlæti. Mynd/GVA
Garra Rufa-fiskarnir eru ferskvatnsfiskar og eru mjög vinsælir út um allan heim fyrir að gefa örnudd sem gerir húðina ótrúlega mjúka og slétta. Þá þykir meðferðin er afar róandi. „Við þökkum kærlega fyrir góðar viðtökur og gaman er að sjá hvernig Íslendingar hafa tekið Fish Spa á Íslandi,“ segir Hallgrímur Andri Ingvarsson, framkvæmdastjóri Fish Spa Iceland sem var opnað í júní á þessu ári. „Nánast hver einasti viðskiptavinur okkar hefur verið ótrúlega sáttur við meðferðina og margir eru farnir að koma reglulega og kunna vel við,“ segir hann en Fish Spa Iceland er einstakur staður fyrir þá sem hugsa vel um líkama og sál og vilja láta sér líða vel. „Við bjóðum upp á róandi og slakandi umhverfi þar sem allir fara út endurnærðir með bros á vör.“ Gjafabréf í Fish Spa er tilvalin jólagjöf sem kemur á óvart. „Þau henta fyrir hópa, vinkonur, steggja- og gæsapartí, öll rómantísk tilefni eða einfaldlega fyrir þá sem vilja koma í dekur,“ segir Hallgrímur. Hann bendir á að Fish Spa verði með jólabása í Glæsibæ og Smáratorgi frá 10. desember fram að jólum þar sem fólk getur keypt gjafabréf. Þá getur fólk einnig komið við á Hverfisgötu 98, á horni Hverfisgötu og Barónsstígs, við hliðina á Argentínu steikhúsi. „Á næsta ári munum við bjóða upp á nýjung þar sem fólk getur komið í handsnyrtingu með Garra Rufa-fiskunum. Við erum búin að setja upp sérstakar stöðvar þar sem fólk getur fengið sér sæti og sett hendurnar þægilega ofan í stórt fiskabúr þar sem 200 Garra Rufa-fiskar sjá um að snyrta fingurna.“
Mest lesið Afsökunum fyrir að drekka ekki kaffi fer fækkandi Atvinnulíf Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Viðskipti innlent Innkalla þurrmjólkina eftir allt saman Neytendur Fjörutíu ára sögu American Style í Skipholti lokið Viðskipti innlent Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Viðskipti innlent Danir lengra komnir í að nýta spuna á vinnustöðum Atvinnulíf Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Viðskipti innlent Ólafur Orri Ólafsson Ólafssonar nýr forstjóri Samskipa Viðskipti innlent Auddi og Rakel hafa valið nafn og leita að starfskröftum Viðskipti innlent „Algjört siðleysi“ Neytendur Fleiri fréttir Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira