„Afmælið sjálft er reyndar á mánudaginn, 25. nóvember, en þar sem mánudagar henta illa til partíhalds ákváðum við að halda upp á þetta á föstudaginn í staðinn,“ segir Valgarður Guðjónsson, söngvari Fræbbblanna, sem spiluðu í fyrsta sinn fyrir þrjátíu og fimm árum á menningarhátíð Menntaskólans í Kópavogi, Myrkramessu.
„Þessi menningarhátíð MK var svona aðallega kórsöngur og ljóðalestur, allt hámenningarlegt,“ útskýrir Valgarður. „Einn okkar hafði lent upp á kant við skólameistarann og við ákváðum að krassa partíið með smálátum og gera grín að skólameistara til að ná okkur niðri á honum. Það gekk nú ekki átakalaust að fá að spila þarna, en okkur tókst að þjösna því í gegn að við fengjum að koma fram.“

Fræbbblarnir hafa gengið í gegnum alls konar breytingar á ferlinum, en upphaflegir meðlimir eru margir „komnir aftur heim" og er liðsskipan nánast sú sama í dag og hún var á Myrkramessunni um árið. Þorsteinn Hallgrímsson spilaði á bassa, Valgarður Guðjónsson söng og til aðstoðar við undirbúning voru þeir Arnór Snorrason og Ríkharður H. Friðriksson. Arnór og Ríkharður gengu báðir fljótlega til liðs við hljómsveitina. Þeir eru allir meðlimir í dag auk þess sem Guðmundur Gunnarsson trommar, Helgi Briem spilar á bassa og Iðunn Magnúsdóttir syngur.
Í tilefni af afmælinu verður opið hús, frítt inn og „gamaldags“ partí á Gamla Gauknum annað kvöld. Fræbbblarnir spila rétt um fimmtíu lög, nýtt efni, lög af „Viltu nammi væna?“ og „Bjór“, öll lögin frá Myrkramessunni og talsvert af annarra hljómsveita efni, lög sem mótuðu hljómsveitina á sínum tíma, að sögn Valgarðs. Gleðin hefst klukkan 23 og stendur fram eftir nóttu.