Búnaður fyrir alla 31. maí 2013 12:00 Þorvaldur Hafberg er framkvæmdastjóri Hafbergs köfunarvara. mynd/vilhelm
Hafberg köfunarvörur býður upp á mikið úrval þurrgalla og almennan köfunarbúnað fyrir kafara frá mörgum þekktum gæðamerkjum. Þorvaldur Hafberg, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir fyrirtækið þjóna sport- og atvinnuköfurum og einnig svokölluðum „technical“ köfurum, sem eru að sögn hans sportkafarar sem eru lengra komnir. „Við bjóðum upp á gott úrval af lungum, vestum og í raun bara allt sem þarf til köfunar og allt sem kafarinn þarfnast.“ Fyrirtækið leigir einnig út köfunarbúnað til lærðra kafara sem ekki eiga búnað eða vantar hluta af búnaði til köfunar. „Við bjóðum upp á allan almenn búnað til leigu en þó þarf að framvísa köfunarskírteini frá viðurkenndum samtökum við afhendingu búnaðar. Um leið þurfa þeir sem leigja vörur frá okkur að vera með þurrgallaréttindi. Við höfum einnig leigt út þurrgalla til göngufólks og þeirra sem stunda sjósund og snorkel-köfun. Þannig að við þjónustum breiðan hóp fólks.“Hentug greiðsludreifing Verslunin býður einnig upp á Lavacore-öndunarfatnað sem bæði er regnheldur og vindheldur. „Hann hentar mjög vel fyrir hjólreiðafólk og kajakræðara og fleiri greinar. Um er að ræða þriggja laga fatnað með micro-flísefni næst húðinni, öndunarfilmu á milli og regnheldu næloni í ysta lagi.“ Þorvaldur bendir á að hægt sé að dreifa greiðslum hjá versluninni til allt að 36 mánaða, sem einfaldi kaup á mjög dýrum búnaði. Almenn viðgerðarþjónusta Fyrirtækið býður einnig upp á almenna viðgerðarþjónustu. „Við gerum til dæmis við lungu, þurrgalla, vesti og slíkan búnað. Einnig má nefna í þessu sambandi að við erum eina fyrirtækið hérlendis sem býður upp á lífstíðarábyrgð á varahlutum í lungu, vesti og köfunartölvur gegn því að þeir komi til skoðunar einu sinni á ári, en það eykur til muna öryggi kafara.“ Heimasíða verslunarinnar inniheldur mjög góðar og aðgengilegar upplýsingar um vörur og þjónustu fyrirtækisins. „Við erum einnig með tvær Facebook-síður undir nafninu Hafberg köfunarvörur, bæði hefðbundna vinasíðu og svokallaða „like“-síðu. Ég mæli sérstaklega með vinasíðunni, sem inniheldur meiri upplýsingar.“ Nánari upplýsingar má finna á kofunarvorur.is og símanúmerið er 612-5441. Vefurinn inniheldur meðal annars nöfn köfunarkennara sem fyrirtækið mælir með.
Mest lesið Fær ekki nýjan skjá vegna „dauðs depils“ í tveggja ára skjá Neytendur „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Viðskipti innlent Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Viðskipti innlent SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda Viðskipti innlent „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Viðskipti innlent Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Viðskipti innlent Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR Viðskipti innlent Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Viðskipti erlent Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira