Veröldin séð úr brúnum sófa 18. maí 2013 12:00 Kort af Springfield.
Á mánudagskvöld kynnumst við bakgrunni Carls Carlssonar sem á sér dularfullar íslenskar rætur. Carl er persóna í þáttunum um Simpsons-fjölskylduna, vinnufélagi Hómers. Sögusviðið færist til Íslands, hljómsveitin Sigur Rós sér um tónlistina í þættinum og kemur fram ásamt því að Jóhönnu Sigurðardóttur og Björk bregður fyrir. Frá því að Simpsons-fjölskyldan kom fyrst fram árið 1989 eru þáttaraðirnar orðnar tuttugu og fjórar og þættirnir fimm hundruð og þrjátíu. Fjölskyldan er sú langlífasta í bandarísku sjónvarpi, enda vinnur tímans tönn seint á persónunum. Í öll þessi ár hefur fjölskyldan sest í brúna sófann fyrir framan sjónvarpstækið og glápt, rétt eins og við glápum á þau. Imbakassanum var reyndar skipt út fyrir flatskjá þegar þættirnir voru sendir fyrst út í háskerpu um leið og ferðalag „myndavélarinnar“ um bæinn var betrumbætt. Þættirnir spegla margar hliðar á lífinu í Bandaríkjunum. Innan hvers þáttar rúmast yfirleitt formáli, krísa og úrlausn. Handritshöfundar miðla ýmsum fróðleik og skoðunum sínum um bandarískt samfélag og þar koma árekstrar milli menningarheima að góðum notum. Slíkir árekstrar eru í raun eitt af aðalumfjöllunarefnum þáttanna.
Menning Mest lesið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Efna til söfnunar í minningu Hennings Lífið Engin stereótýpa: „Það breyttist allt þegar ég var í fimmta eða sjötta bekk“ Áskorun Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Lífið Styrkir Minningarsjóð Bryndísar Klöru á Menningarnótt og skorar á aðra Tónlist Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Lífið Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira