Extreme Chill í fjórða sinn 30. apríl 2013 13:00 Hljómsveitin Samaris spilar á Extreme Chill Festival. Mynd/Stefán
Íslenska raftónlistarhátíðin Extreme Chill Festival – Undir jökli verður haldin í fjórða sinn helgina 12. til 14. júlí á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Í ár koma um tuttugu íslenskir tónlistarmenn fram, auk fjögurra erlendra tónlistarmanna: Mixmaster Morris frá Bretlandi (sem kom einnig fram í fyrra) Mimetic frá Sviss, Fishimself frá Grikklandi og Le Sherifs frá Egyptalandi. Á föstudagskvöldinu verða tónleikar í félagsheimilinu Röst. Á laugardeginum hefst dagskráin utandyra í hádeginu með lifandi flutningi og plötusnúðum og verður dagskráin svo færð inn í Röst um kvöldið. Á hátíðinni koma einnig fram flestir helstu raftónlistarmenn landsins: Stereo Hypnosis, Futuregrapher, Úlfur, Samaris, Rúnar Magnússon, Tonik, Mikael Lind, Skurken og fleiri. Extreme Chill Festival hefur tvö ár í röð fengið úthlutað úr menningarsjóði Kraums. Breska dagblaðið The Guardian kaus hátíðina „eina af þeim fimmtán athyglisverðustu í Evrópu 2012 sökum staðsetningar og umhverfis“. Miðasala á hátíðina hefst á miðvikudag hér á Midi.is. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu hátíðarinnar.Staðsetning Extreme Chill-hátíðarinnar á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls hefur vakið athygli út fyrir landsteina.
Tónlist Mest lesið Lífið í LA smá eins og bandarísk bíómynd Lífið Svona er Þjóðhátíðarlagið 2025 Lífið „Erfitt að vera á heimilinu því það var svo mikil sorg“ Lífið Ekki mikið að gera í bransanum eftir líkamsárásina Lífið Stefán Teitur á skeljarnar Lífið VÆB bræður á forsíðu BBC Lífið Dómararennsli hleypir spennu í seinni undanriðlinn Lífið Joe Don Baker látinn Bíó og sjónvarp Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Bíó og sjónvarp Sendi ræningjunum skýr skilaboð þakin demöntum Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira