„Ég er algert tónlistarnörd, þetta kemur í staðinn fyrir golfið hjá mér,“ segir Gunnlaugur Jónsson knattspyrnuþjálfari, sem síðustu mánuði hefur verið að undirbúa útvarpsþætti um íslenska tónlist sem nefnast Árið er… íslensk dægurlagasaga í tali og tónum.
Fyrsti þátturinn fer í loftið þann 4. maí og í hverjum þætti verður eitt ár í íslenskri tónlistarsögu tekið fyrir frá árinu 1983. Tilefnið er þrjátíu ára afmæli Rásar 2. Gunnlaugur hefur hingað til verið betur þekktur fyrir lipra takta á knattspyrnuvellinum. „Þetta er mitt áhugamál og ég næ ágætis jafnvægi þarna með knattspyrnunni.“
Gunnlaugur sér um handritagerð ásamt Ásgeiri Eyþórssyni og Jónatani Garðarssyni. Við hljóðnemann sitja svo Ásgeir og söngkonan Sigríður Thorlacius. Gamlar upptökur í bland við viðtöl við tónlistarmenn eru meðal þess sem verður á boðstólnum.
Þjálfari með útvarpsþætti um íslenska tónlist
