Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri Borgarleikhússins, segist hlakka mjög til samstarfs við Kristján. „Stefnan er sú að Kristján komi hingað nokkrum sinnum næsta vetur til að undirbúa sýninguna sem verður svo frumsýnd í Borgarleikhúsinu leikárið 2014-2015."
Kristján kom til Íslands í upphafi síðustu viku með leiksýninguna Blam! sem var valin leiksýning ársins 2012 í Danmörku. Blam var sýnd sex sinnum fyrir fullu húsi í Borgarleikhúsinu en hún verður sýnd í Hofi á Akureyri á miðvikudag og fimmtudag.
„Því miður gátum við ekki bætt við fleiri sýningum hér í Borgarleikhúsinu. En sem betur fer náðum við að búa svo um hnútana að Blam! verður sýnt aftur hér næsta vetur," segir Magnús Geir og bætir við að það skýrist fljótlega hvenær Kristján og félagar verði á ferðinni í Borgarleikhúsinu.
Kristján Ingimarsson sem er fæddur og uppalinn á Akureyri hefur að mestu alið manninn í Danmörku frá því hann var rúmlega tvítugur. Hann segir mikilvægt að sýna verkin sín á Íslandi: „Ég á ekki orð til að lýsa því hvað mér þykir vænt um að finna þessi frábæru viðbrögð. Samstarfið við Borgarleikhúsið hefur verið framúrskarandi og því hlakka ég mikið til að þróa nýju sýninguna með þeim," segir Kristján en Blam! fékk fullt hús stiga hjá gagnrýnanda Fréttablaðsins og gagnrýnanda DV.
Þess má geta að Blam! fer í leikferð til Bretlands, Noregs, um Danmörku og víðar á árinu. „Ég spái því að sýningin muni leggja heiminn að fótum sér," segir Magnús Geir að lokum.
