Daft Punk hefur samið við útgáfuna Columbia og mun gefa út fjórðu plötu sína í vor. Franska dansdúóið var áður á mála hjá Virgin sem það samdi við árið 1996.
Orðrómur hefur verið uppi um að hljómsveitin ætli að spila á Coachella-hátíðinni í apríl en samkvæmt upplýsingum úr herbúðum hennar ætlar hún ekki á tónleikaferð á þessu ári. Síðasta plata Daft Punk er Human After All sem kom út 2005. Fyrir þremur árum kom einnig út tónlist sveitarinnar við myndina Tron: Legacy.
Daft Punk með plötu í vor
