Landsliðskonur mæla með sérhönnuðum vítamínum 31. janúar 2013 06:00 Handboltakonurnar Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir og Þorgerður Anna Atladóttir eru ánægðar með Wellwoman Sport-vítamínin. "
Ég hef fundið rosalega mikinn mun á því hvað ég er mikið hressari þegar ég vakna á morgnana. Auk þess finn ég að ónæmiskerfið er mun sterkara enda hef ég ekkert orðið veik í vetur, ekki einu sinni fengið kvefpest,“ segir Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir, sem spilar handbolta með meistaradeild Vals ásamt því að vera í íslenska kvennalandsliðinu. Hún hefur í nokkra mánuði tekið inn Wellwoman Sport. Liðsfélagi hennar, Þorgerður Anna Atladóttir tekur í sama streng. "Ég finn mikinn mun á mér um eftirmiðdaginn, eftir vinnu var ég oft mjög þreytt og langaði helst að leggja mig en nú finnst mér ég ekki þurfa þess,“ segir hún og bætir við að henni finnist hún líka mun ferskari á æfingu. "Ég er mikið meira til í að fara á æfinguna og er á fullu allan tímann.“ Wellwoman Sport and fitness er sérhannað vítamín fyrir konur og er hluti af VITABIOTICS-vítamínlínunni frá Icepharma sem inniheldur vítamín og bætiefni sérsniðin fyrir mismunandi þarfir einstaklinga á öllum aldri. Wellwoman Sport var þróað sérstaklega fyrir konur sem stunda miklar æfingar og vilja skara fram úr á sviði íþrótta og líkamsræktar en mætir einnig þörfum hinnar nútímalegu konu sem stundar vinnu og almenna hreyfingu. Ragnhildur segist fljótlega hafa fundið mun á sér eftir að hún hóf að taka Wellwoman Sport. "Ég fann mun á mér eftir viku eða tvær. Þá varð ég mikið hressari og hafði miklu meiri orku yfir daginn. Þegar maður er að vinna allan daginn og fer svo beint á æfingu munar það miklu,“ segir hún en Ragnhildur og Þorgerður fara á æfingu fjórum sinnum í viku og spila iðulega leik á laugardegi. Þær þurfa því á orkunni að halda. Flestir íþróttamenn sem stunda stífar æfingar taka inn aukalega fæðubótarefni af einhverju tagi. Þær Ragnhildur og Þorgerður segjast ekki þurfa neitt meira en Wellwoman Sport ef frá er talið D-vítamín sem allir ættu að taka. "Þá er líka gott að vita að Wellwoman er sykurlaust og saltlaust. Maður veit að gæðin eru í lagi,“ segir Ragnhildur. Dagskammtur af Wellwoman Sport er ein tafla á dag sem tekin er með aðalmáltíðinni. Þær stöllur taka hana með hádegismatnum sem veitir þeim orku yfir daginn. Taflan inniheldur 25 næringarefni. "Meðal annars guarana og grænt te sem hefur örvandi áhrif og er orkugefandi,“ upplýsir Ragnhildur en meðal annarra efna má nefna Q-10 og L-karnitín auk betakarótíns. Þó Wellwoman Sport sé sniðið að þörfum íþróttakvenna mæla þær Ragnhildur og Þorgerður með því fyrir allar konur á aldrinum 20 til 50 ára sem stunda einhverja hreyfingu. Í vítamínlínunni frá Vitabiotics ætti hver og einn að finna vítamín við sitt hæfi en í línunni eru einnig sérhæfð vítamín fyrir börn, unglinga og karla á öllum aldri. Vítamínin frá Vitabiotics fást í apótekum og stórmörkuðum.
Mest lesið Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent „Það fyrsta sem ég segi er „Góða morgun““ Atvinnulíf Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Viðskipti innlent Tvöfaldar tolla á innflutt stál og ál Viðskipti erlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Sektaðar fyrir að trassa með verðmerkingar á Selfossi Neytendur Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira