Með tvo umboðsmenn í London 12. janúar 2013 12:00 spilar í viðey Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðey í kvöld. fréttablaðið/valli
Tónlistarkonan Lára Rúnarsdóttir heldur útgáfutónleika í Viðeyjarstofu í Viðey í kvöld. Þar kynnir hún sína fjórðu plötu, Moment, sem kom út fyrir jól. „Mig langaði að gera þetta aðeins öðruvísi og ætlaði fyrst að halda tónleikana í stofu. En að ná fólki út á eyju er eitthvað svo framandi,“ segir Lára. Hún ákvað að halda tónleikana núna, bæði vegna þess að mjög mikið framboð var af tónleikum fyrir jólin og vegna þess að hún var í prófum í desember. Hún er á fyrsta ári í meistaranámi sínu í kynjafræði við Háskóla Íslands. Síðasta plata Láru, Surprise, kom út 2009 og í kjölfarið vaknaði áhugi fyrir henni erlendis. Hún lék á tónleikum fyrir tímaritið Q í London ásamt Amy MacDonald auk þess að koma fram á mörgum tónlistarhátíðum víðs vegar um Evrópu, þar á meðal SPOT, Eurosonic og The Great Escape. Lára er með tvo umboðsmenn í London, Nick Knowles og hinn þrautreynda Chris Morrison sem hefur unnið fyrir Blur og Gorillaz. Þeir eru að vinna í að koma henni á framfæri í Evrópu en þeir eru líka með hljómsveitina Sykur og Sóley á sínum snærum. „Þetta gæti tekið tíu ár þess vegna,“ segir hún og brosir. Fleira er að frétta af Láru því hún er á leiðinni í brúðkaupsferð til Taílands í febrúar. Hún gifti sig árið 2010 og á fjögurra ára dóttur með eiginmanni sínum Arnari Þór Gíslasyni. „Við ætlum að vera í tvær vikur og kafa og klifra,“ segir hún og hlakkar mikið til.-fb
Tónlist Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Hélt við konu besta vinar síns Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Fleiri fréttir Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Þykja skuggalega lík Fleetwood Mac „Okkur var ekkert cancelað, nema hann bara gerði það sjálfur“ Heitustu rapparar landsins í eina sæng Sigur Rós í Handmaids Tale Einn heitasti plötusnúður í heimi á leið til landsins Nauðsynlegt að gera upp fortíðina Frumflutti „Hver er sá besti“ í Fíladelfíu árið 1985 Kærleiksbomba frá GusGus Nýtt lag frá VÆB-bræðrum: „Bíðið bara, það verður epic!“ „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Sjá meira