Það þykir ekki lengur fréttnæmt þegar poppstjörnur og kvikmyndaleikarar leggja nafn sitt við ilmvatn. Og enginn er stjarna með stjörnum nema að vera með sína eigin fatalínu. En vilji gamlir og afdankaðir rokkarar vera með í fjörinu þurfa þeir að nota ímyndunaraflið. Það vill jú líklega enginn klæðast eins og Axl Rose. Eða lykta eins og Lemmy í Motörhead. Hér eru nokkur dæmi um undarlegan varning sem hégómafullir rokktónlistarmenn hafa sett á markað.
Kaffi

Mustaine-kaffið var ekki lengi á markaði, en það fékkst í nokkrum tegundum. aðrir sem hafa reynt fyrir sér í kaffibransanum eru sjokkrokkarinn Rob Zombie og trommuleikararnir Charlie Benante úr Anthrax og Joey Kramer úr Aerosmith.
Sterk sósa

Gítarleikarinn Bumblefoot úr Guns N' Roses á sína eigin sósu, Íslandsvinurinn Billy Gibbons úr ZZ Top, og fyrrum bassaleikari Van Halen, Michael Anthony, einnig.
Marky Ramone úr pönksveitinni Ramones sker sig úr en hann selur pastasósur. Auðvitað gerir hann það.
Líkkistur

Listinn yfir furðuvarning Kiss er endalaus, en það skrýtnasta á honum er án efa Kiss-líkkistan. Hún er fáanleg í nokkrum útfærslum, og til dæmis var gítarleikarinn Dimebag Darrell úr hljómsveitinni Pantera jarðsettur í einni slíkri.
Þá eru Kiss með fleiri útfarartengdar vörur, svo sem sálmabækur, kerti og duftker fyrir bæði menn og dýr.
Ostur

Hann gerðist ostagerðarmaður og má finna ostinn hans í öllum helstu matvöruverslunum Englands. Hann lét þó ekki staðar numið þar heldur gaf í fyrra út bókina All Cheeses Great and Small, en í henni deilir hann reynslu sinni af ostagerðinni.
Málmleitartæki

Er þetta eitt helsta áhugamál Wyman, eins og sést í myndbandinu hér fyrir neðan þar sem hann kynnir apparatið fyrir áhorfendum og sýnir þeim hvernig á að bera sig að við málmleitina.