Sannleikurinn: Menn með milljón á mánuði hækkuðu lægstu laun um þúsundkalla 21. desember 2013 22:10 Glæsileg niðurstaða. Til hamingju Íslendingar með þúsundkallana ykkar.
Andri Þór Sturluson skrifar: Gríðarlega tekjuháir menn skrifuðu undir nýjan kjarasamning í húsakynnum ríkissáttasemjara nú í kvöld. Samningurinn gildir til 31. desember 2014 og kveður á um 2,8% launahækkun og að lægstu laun hækki um 9.750 kr. Með vöfflu í boði ríkissáttasemjara í annarri og penna sem kostar hálf mánaðarlaun verkamanns í hinni skrifuðu fjárhagslega mjög vel stæðir samningsaðilar undir tímamótasamning sem veita mun félagsmönnum nokkra þúsundkalla aukalega í laun á mánuði til að verða að verðbólgusnarli. Strax upp úr hádegi var Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ með rúma milljón á mánuði, viss um að hægt yrði að ná samkomulagi við Björgólf Jóhannson, formann Samtaka atvinnulífsins með vel yfir milljón á mánuði, um 9.750 króna hækkun lægstu launa og 2,8 prósent almenna hækkun. Samningurinn er til 12 mánaða en að þeim tíma liðnum munu mennirnir með margföld laun okkar hinna endurskoða hann og sjá til hvort þeir splæsi ekki á okkur einhverjum krónum í viðbót. Líkt og með gjafir jólasveinanna verður það þó sennilega aðeins í boði ef við verðum öll stillt og prúð þangað til. Gleðileg jól öllsömul og ekki eyða allri þessari hækkun í vitleysu.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu sem á ekki við vandamál að stríða.
Harmageddon Mest lesið Dómstólar leggja mat á hvort Stairway To Heaven sé stolið Harmageddon Vildi ekki að persónulegir brestir vörpuðu skugga á störf Pírata Harmageddon Æstur öryrki kallaði þingmann Bjartrar Framtíðar nasista Harmageddon Kostulegt samtal Frosta við Nígeríusvindlara sem lofar honum milljónum króna Harmageddon Ein grófasta kvikmyndastikla sögunnar sett á vefinn Harmageddon Hvers vegna styðja Vesturveldin uppreisnarmenn í Sýrlandi? Harmageddon Myndband: Vök með nýtt lag á Nordic Radio Playlist Bar Harmageddon Átökin verði staðbundin ef til þeirra kemur Harmageddon Leoncie loksins komin heim Harmageddon Hinn skrautlegi Nick Oliveri aftur til liðs við Queens of the Stone Age? Harmageddon