Subaru BRZ Shooting Brake Finnur Thorlacius skrifar 21. nóvember 2013 16:30 Subaru Cross Sport Design Concept
Sportbílar eru oft erfiðir í sölu og seljast oft best fyrst eftir kynningu þeirra og svo fjarar salan út. Eitthvað lyktar þessi bíll af þessum vanda. Hann er byggður á Subaru BRZ/Toyota GT-86 sportbílnum, en hefur verið lengdur og hækkaður og með miklu stærri dekk, en er samt á sama undivagni. Þennan bíl var Subaru að frumsýna á bílasýningunni í Tokyo sem nú stendur yfir. Alls ekki að þetta sé slæm hugmynd og bíllinn er fallegur að auki. Eins og sést á myndinni er þessi bíll tveggja hurða eins og BRZ og verður það að teljast óvenjulegt fyrir svona bíl. Ef hann fer í sölu verður hann líklega með sömu 200 hestafla vél og upphaflegi sportbíllinn. Innanrými og skott bílsins hefur stækkað umtalsvert og ætti hann fyrir vikið að höfða til breiðari kaupendahóps, sem hlýtur að vera meginmarkmiðið með tilkomu hans. Hann er 7 sentimetrum lengri en BRZ bíllinn og í raun allt öðruvísi í útliti. Það er bara framendinn sem kemur upp um hann og er hann mjög líkur BRZ bílnum. Þessi bíll hefur fengið nafnið Subaru Cross Sport Design Concept og vonandi fer hann í framleiðslu. Séð aftan á bílinn.
Mest lesið Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Innlent Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Innlent Ringulreið á lánamarkaði Innlent „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Innlent Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Innlent Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Risavaxin mörgæs slær í gegn Erlent Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api Innlent