„Ég hef alltaf verið samþykkur auknu eftirliti með íslensku þjóðinni. Ég hafði reyndar hugsað mér einhvers konar netsíu en ef það er njósnað um allt heila klabbið þá er það bara betra. Við þurfum ekki klámlögreglu eða fjölmiðlanefnd ef við erum með bandaríska njósnara andandi ofan í hálsmálið á okkur,“ segir Ögmundur.

„Ef Bandaríkin hafa njósnað um íslenska ráðamenn þá er það mjög alvarlegt. Það þýðir að Obama hafi vitað af áformum forsætisráðherra að taka sér vikufrí. Hann veit að ég sem utanríkisráðherra get ekki borið fram nöfn erlendra ríkja nema Sauðakróks og að Bjarni Ben er að leggja nýjan veg í gegnum Gálgahraun til að geta byggt bensínstöð á landareign sinni og hagnast um milljarða,“ segir Gunnar Bragi í samtali við fréttastofu.
„Ef njósnirnar voru þeim mun umfangsmeiri getur verið að Obama hafi ekki þurft að hlusta á Tvíhöfða til að vita að Gnarrinn hættir, hann veit hvað Hofsvallagötufuglahúsin kostuðu og hann á miða á Ísland - Króatía því leyniþjónustan sagði honum að miðasala hæfist klukkan 4 um nóttina. Það er náttúrulega þvílíkt öryggismál fyrir okkur, sem hvorki höfum her, geimferðaráætlun eða peninga til að reka sómasamlegt sjúkrahús, að fá úr því skorið hvort æðstu menn okkar mikilfenglegu þjóðar hafi verið hleraðir!“
Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem umfangsmiklar iðnaðarnjósnir eru stundaðar.