Margir keyptu einkaleyfi Wankels
Fjölmörg fyrirtæki keyptu einkaleyfi hans og þróuðu vél hans enn frekar. Meðal þeirra fyrirtækja voru Mercedes Benz, General Motors, Rolls Royce og Mazda. Enginn tók þó smíði þeirra í meiri hæðir en Mazda. Rotary vélar sáust þó frá ýmsum framleiðendum í fólksbílum, sportbílum, trukkum, mótorhjólum, flugvélum, snjósleðum, go-kart bílum, hjólsögum, sjóköttum og ofuröflugum keppnisbílum. Einn bílanna hafði sigur í Le Mans þolakstrinum, hinn frægi 787B-bíll frá Mazda, sem vann kappaksturinn árið 1991. Sá bíll var 700 hestöfl og hafði hámarkshraðann 338 km/klst. Meðalhraði hans í keppninni var 205 km/klst og komst hann 362 hringi á brautinni á þeim 24 klukkustundum sem þolaksturinn tekur.
Ótrúlegar móttökur fyrsta bílsins
Þegar Mazda tók Rotary vélina uppá sína arma og smíðaði fyrsta bílinn með þannig vél hét fyrirtækið ekki einu sinni Mazda heldur Toyo Kogyo, sem síðan stofnaði bíladeild innan fyrirtækisins sem fékk nafnið Mazda. Þegar Mazda sýndi sinn fyrsta Rotary bíl á bílasýningunni í Tokyo árið 1963 voru aðeins liðin þrjú ár síðan Mazda framleiddi sinn fyrsta bíl, R360 kei car. Því var þetta útspil Mazda bæði mjög óvænt og metnaðarfullt. Fyrsti Rotary bíll Mazda var með 0,8 lítra sprengirými, en Rotary vélar eru hvað þekktastar fyrir að ná mörgum hestöflum út úr litlu sprengirými. Bíllinn var 70 hestöfl og fékk nafnið Mazda Cosmo Sport og ók forstjóri Toyo Kogyo þessum sportlega og fríða bíln inná sýninguna við mikla eftirtekt sýningargesta. Bíllinn fékk verðskuldaðar frábærar móttökur, enda var bíllinn framúrstefnulegur, afar sportlegur og eins og beint úr einhverri framtíðarkvikmynd. Hann bar þó keim af Ford Thunderbird, bara miklu minni, en margir af fyrstu bílum japanskra framleiðenda báru mjög keim af bandarískri framleiðslu.
Fordómar í garð japanskra framleiðenda
Þessi fyrsti Rotary bíll Mazda sýndi heimsbyggðinni fyrir hvað Mazda mundi standa í framtíðinni og ný stjarna var fædd. Margir höfðu þó efasemdir um bíla frá Japan, sem síðar átti að sannast að voru aldeilis ekki á rökum reistar. Sömu fordómum mætti 2000GT bíll Toyota, sem menn síðar áttuðu sig á að var aldeilis frábær bíll og er söfnunarbíll í dag. Mazda hélt áfram að þróa bíla með Rotary vélum og næsti bíll kom aðeins ári síðar, 1964 og aðrari japanskir framleiðendur fylgdu í kjölfarið. Árið 1967 var Mazda búið að fullkomna Cosmo bílinn og var vél hans orðin 110 hestöfl með 10A Rotary vél sína.
Er Rotary draumurinn úti?
Rotary vélin þjáðist samt alltaf af mikilli eldsneytiseyðslu og því urðu margir bílaframleiðendur henni afhuga. Mazda hélt þó uppi nafni hennar og setti Rotary vélar í flestar sínar bílgerðir. Frægir bílar Mazda með Rotary vél urðu síðar RX-3 og RX-7 sportbílarnir, en kaupendur þeirra höfðu ekki eyðslu þeirra efst í huga. Síðasti bíllinn sem Mazda framleiddi með Rotary vél varð svo RX-8, sem bílageggjarar þreytast ekki við að mæra fyrir frábæra akstureiginleika. Sala hans fór þó sífellt þverrandi og svo fór að framleiðslunni var hætt. Mazda hefur þó haldið áfram að þróa nýja Rotary vél sem kölluð er 16X, en ókostir Rotary vélanna gæti reynst Mazda fjötur um fót og ekki víst að fyrirtækið þori að ráðast í framleiðslu bíls með þeirri vél. Mazda er þó ekki alveg tilbúið að jarða þessa frægu arfleifð sína og jarðarför Rotary vélarinn hefur ekki enn farið fram. Skildi Mazda sjokkera bílaheiminn einu sinni enn með Rotary bíl á komandi bílasýningu í Tokyo?
