Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Andri Þór Sturluson skrifar 14. október 2013 09:45 Deilt var um hvort ólögráða einstaklingar gætu stofnað til löggildra vændissamninga
Karlmaðurinn sem kærði barnið sem sveik hann um kynlíf gegn greiðslu hefur verið ákærður fyrir vændiskaup. Það gerðist þó ekki fyrr en ákæruvaldið hafði ítrekað reynt að fá barnið dæmt fyrir að svíkja ólánsama vændiskaupandann. Upphaflega hafði lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefið út ákæru á hendur barninu þar sem það var ákært fyrir fjársvik. Forsaga málsins er sú að ógeðslegur kall taldi sig hafa dottið í lukkupottinn þegar hann fann stúlku undir aldri á einkamal.is sem virtist eiga nógu erfitt og hafa átt nógu ömurlega ævi til að hann fengi að ríða henni fyrir eitthvað klink. Barnið var þó ekki nógu bugað eða skemmt af fíkniefnaneyslu til að standa við samningin sem það hafði engan aldur til að stofna til og hljóp á brott með 20 þúsund krónur frá manninum sem ætlaði sér að misnota það. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gaf út ákæru og gaf barninu að sök að hafa svikið níðinginn með því að leyfa honum ekki að misnota sig. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði ákærunni frá með þeim orðum að ákværuvaldið væri eitthvað verulega ruglað að ætla að neyða börn til að standa við vændissamninga sem þau stofnuðu til. Ákæruvaldið var ekki sátt við þá niðurstöðu og áfrýjaði til Hæstaréttar. Hæstiréttur staðfesti síðan að ákæruvaldið væri ruglað og siðferðislega brenglað, líkt og viss vændiskaupandi sem kærði barnið fyrir fjársvik í upphafi. Eftir að hafa orðið sér til skammar og málið komst í fjölmiðla hefur ríkissaksóknari loksins ákveðið að kæra karlmanninn fyrir vændiskaup.Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu þar sem hún selur sig.
Harmageddon Mest lesið Jack Live tónleikar á Húrra í kvöld Harmageddon Móðir Sævars poetrix viðurkennir ofbeldi Harmageddon Strangheiðarlegur og hafður fyrir rangri sök Harmageddon Stefán Jón vill bæta lífskjör starfsmanna RÚV Harmageddon Bombay Bicycle Club með tónleika í Hörpu í nóvember Harmageddon Axl Rose fordæmir forseta Indónesíu Harmageddon Sannleikurinn: "En á björtu nótunum þá hefst 30 ára afmælisdagskrá Rásar 2 á morgun“ Harmageddon Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon Of Monsters And Men eru byrjuð að vinna að nýju efni Harmageddon Sannleikurinn: Þetta hefði getað verið ég sem missti vinnuna í dag Harmageddon
Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon
Sannleikurinn: Íþróttamaður ársins vann sinn fyrsta titil í ár þegar hann var valinn íþróttamaður ársins Harmageddon