Á meðal þess sem aðdáendur geta keypt er stefnumót með meðlimi Orgy að eigin vali fyrir aðeins $1000 eða um 120.000kr. Allur kostnaður við stefnumótið og ferðakostnaður er þó ekki innifalinn í verðinu.
Efnameiri aðdáendur geta þó einnig keypt risapakka fyrir $20.000, eða um 2,4 milljónir króna en þeim pakka fylgir árituð plaköt, einkatónleika auk þess að fá plötuna tileinkaða sér.
Orgy stefndi á að safna $100.000 en nú þegar að einungis átta dagar eru til stefnu hafa þeir aðeins tryggt sér rúmelga $7000.
Hljómsveitin Orgy skaust upp á stjörnuhimininn árið 1998 þegar ábreiða þeirra af laginu „Blue Monday“ sló í gegn og í kjölfarið seldist plata þeirra, „Candyass“, gríðarlega vel. Síðan þá hefur leiðin hisnvegar legið niður á við hjá Orgy og í dag er söngvari sveitarinnar eini upprunarlegi meðlimurinn.
Ástæðan fyrir þessari hnignun hljómsveitarinnar er þó að sjálfsögðu ekki lélegum gæðum þeirra að kenna, heldur einfaldlega að tónlistariðnaðurinn hafi breyst og ólöglegt niðurhald aukist, að minnsta kosti að þeirra mati.
Hafi lesendur áhuga á að styrka Orgy má gera það hér og einnig má horfa á myndband frá sveitinni þar sem þeir kynna verkefnið.
https://www.indiegogo.com/projects/orgy-music