Vettel sakaður um ólöglegan bíl Finnur Thorlacius skrifar 5. október 2013 08:45 Sebastian Vettel á Red Bull bíl.
Frá því árið 2009 hefur skrikvörn verið bönnuð í Formúlu 1 bílum. Var það gert í kjölfar þess að bíll með slíkan búnað fór hringinn í Formúlu 1 brautinn í Singapore á tveimur sekúndum betri tíma en bíll án skrikvarnar. Það er fyrirliði Red Bull, Giancarlo Minardi, sem segist hafa fylgst með bíl Vettel og segir vélarhljóð bílsins sem Vettel ekur sé samskonar hljóð og heyrðist frá þeim bílum sem búnir voru skrikvörn á sínum tíma. Lewis Hamilton hjá Mercedes Benz hefur stutt orð Giancarlo og telur það undarlegt að Vettel geti staðið bíl sinn í botni meira en 20 metrum fyrr en aðrir keppnisbílar og síðast er hann heyrði slíkt var það á árunum 2007 og 2008, þegar skrikvörnin var leyfileg í Formúlu 1. Vettel á hinn bóginn segir að Red Bull bílarnir sé með betri vélarstillingar en hinir bílar keppninnar og að í fyrsta skipti sem besta stilling þeirra náðist hafi einmitt verið í Singapore akstrinum. Ökumennirnir Fernando Alonso og Nico Rosberg hafa tekið endir orð Vettel og segja að þetta hljóð sem Ginancarlo vitnar til hafi verið til staðar í bíl Vettel allt frá æfingum sl. vetur og að bíll hans hafi staðist allar skoðanir sem framkvæmdar hafa verið þetta keppnistímabil.
Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Innlent Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent