Þó svo að sala bíla í Þýskalandi hafi heldur gefið eftir í ár framleiða þýskir bílasmiðir sem aldrei fyrr. Framleiðsluaukningin í nýliðnum septembermánuði nam 14% og taldi alls 515.200 bíla.
Þar af voru fluttir út 389.000 bílar, eða 75,5% framleiðslunnar. Þýsku framleiðendurnir hafa alls flutt út 4,1 milljónir bíla það sem af er árinu og seljast þeir eins og heitar lummur um allan heim.
Sala bíla í heimalandinu Þýskalandi féll um 1% milli ára, en í ágúst hafði hún fallið um 5%. Heildarsamdrátturinn í sölu bíla í Þýskalandi er um 6% í ár og því virðist sem samdrátturinn sé nú heldur á undanhaldi.

