Hljómsveitin Skálmöld pissar í flöskur Ómar Úlfur skrifar 13. september 2013 12:13 Skálmaldarmenn deyja ekki ráðalausir og pissa í flöskur þegar nauðsyn krefur.
Hljómsveitin Skálmöld er þessa dagana á tónleikaferðalagi um Evrópu ásamt hljómsveitunum Tý og Finntroll. Sveitin mun leika á 37 tónleikum á 39 dögum í sextán löndum. „Evrópubúar kunna eitthvað sem að við íslendingar kunnum ekki. Það er að mæta á réttum tíma á tónleika,“ segir Snæbjörn Bibbi Ragnarsson, bassaleikari Skálmaldar, í viðtali við X-977 frá Búdapest í Ungverjalandi. Hann segir túrinn hafa gengið vonum framar og viðtökur Evrópubúa við sveitinni hafa verið frábærar. Skálmöld hafa nú þegar selt megnið af varningnum tengdum sveitinni og þurfa því að panta meira frá Íslandi. Aðspurður segir Bibbi að það sé töluverður munur á milli þjóðanna t.d. séu Þjóðverjar oft frekar stífir og meðvitaðir á meðan að Pólverjar sleppi gjörsamlega fram af sér beislinu á tónleikum. Vegalengdir milli tónleika hlaupa oft á hundruðum kílómetra og leigði sveitin sér rútu til fararinnar. Bibbi segir að enn hafi ekki slest uppá vinskapinn innan sveitarinnar en viðurkennir að þröngu rými fylgi nokkur vandamál eins og til dæmis salernisleysi um borð í langferðabílnum. Meðlimir Skálmaldar hafa leyst þetta vandamál með því að auka drykkju á sterku áfengi á kostnað bjórsins. Sveitin kom sömuleiðis við í lyfjaverslun í upphafi ferðalagsins og festi þar kaup á sérstökum þvagflöskum sem eru svo notaðar á ferð og tæmdar samviskusamlega þegar að rútan stöðvast. Skálmöld nýtir ferðalagið sömuleiðis við undirbúning á stórtónleikum sveitarinnar ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands sem fara fram í Hörpu 29. nóvember næstkomandi. Bibbi segir að það sé klárlega kostur að hafa menn lokaða saman í þröngu rýmu þegar skipuleggja eigi svona stórtónleika og hann lofar gríðarlegu stuði á tónleikunum í Búdapest í kvöld. Viðtalið við Bibba má heyra hér fyrir ofanFerðablogg Skálmaldar er hér.
Harmageddon Mest lesið Keyrir ekki um á Range Rover Harmageddon Sannleikurinn: Allir fréttamenn merktir varanlega Harmageddon Gera á torgum það sem nasistar hefðu reynt að fela Harmageddon Páll Óskar: Fimm bestu HAM-lögin Harmageddon Refsistefna í fíkniefnamálum endurskoðuð Harmageddon Rokkprófið - Jónsi vs. Ólöf Jara Harmageddon Siggi Hakkari sakar Wikileaks um hroka Harmageddon Segir fjármagnsöflin stjórna landinu Harmageddon Nýsjálenskir femínistar snúa vörn í sókn Harmageddon Myndband frá einum síðustu tónleikum Nirvana Harmageddon