Myndbandið átti að taka upp yfir þrjá daga í maí en þar sem sumarið dróst á langinn tókst ekki að klára myndbandið fyrr en seint í júlí.
„Meðlimir Ylju og nokkrir nánir vinir leika í myndbandinu en þurftu reyndar lítið að leika. Stemningin var svakalega góð allan tímann og margir grínarar í hópnum svo flest brosin og hlátursköstin eru alveg ekta,“ segir Ásgeir Guðmundsson, umboðsmaður hljómsveitarinnar um gerð myndbandsins.
„Fyrsti tökudagurinn í júní einkenndist af því að tökulið og leikarar biðu í eftirvæntingu eftir því að skýin hleyptu sól í gegn og var þá hlaupið til,“ bætir hann við.
Myndbandið er skotið á 8mm filmu og því tók framköllun og eftirvinnsla nokkurn tíma. Það var tekið í samstarfi við Sagafilm og Fíton en leikstjóri er Guðjón Jónsson. Lesendur geta barið það augum hér fyrir neðan.