Hómófóbískur áróður í tímariti MAD Frosti Logason skrifar 24. ágúst 2013 17:53 Hrikalega gott grín eða þannig.
Á síðunni madmagazine.com má finna frekar ógeðfelldan boðskap gegn bandaríska hermanninum Bradley Manning sem hér eftir vill láta kalla sig Chelsea Manning. Chelsea hefur lýst því yfir að hún hafi alltaf upplifað sig sem konu í karlmannslíkama og tilkynnti það nýverið að hún óski eftir að gangast undir hormónameðferð á meðan hún afplánar dóminn sem hún fékk fyrir að leka hernaðarleyndarmálum til fjölmiðla. MAD birtir skop mynd af G.I. Joe leikfangi þar sem gert er hispurslaust grín af Manning og kynvitund hennar og hún kölluð svikari. Við myndina er svo birtur eftirfarandi texti: „Ný viðmið í hetjuskap, dæmdur svikari Bradley Manning tilkynnti að á meðan hann sæti af sér refsingu fyrir að svíkja föðurland sitt, vill hann að þetta sama föðurland greiði fyrir hann hormóna meðferð svo hann geti orðið Chelsea Manning! Það er kaldhæðnislegt að svo svívirðileg krafa krefst vissulega pungs. Vísindi geta jú breytt kyni einnar manneskju, en þau geta ekki gert hana að minni fávita.“ Upprunalega grein hjá MAD Magazine má finna hér.
Harmageddon Mest lesið Dómsmálið yfir Gísla hugsanlega mannlegur harmleikur Harmageddon Íslendingurinn sem er að slá í gegn í Dexter Harmageddon Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Harmageddon Er fólk sem hnerrar með látum að gera það viljandi? Harmageddon Eins og djúsí Big Mac með stórum frönskum Harmageddon Sannleikurinn: Pizzukvöld yfir The Biggest Loser Harmageddon Chicane heillaðist af Vigri í frakklandi Harmageddon Norska krullulandsliðið hlýtur að vera ósigrandi í þessu Harmageddon Reykjavíkurdætur frumsýna nýtt myndband á Vísi Harmageddon Fyrirmyndarmæður slá í gegn á internetinu Harmageddon