Í síðasta mánuði var Arna að fara í myndatöku fyrir mexíkanska Playboy tímaritið og átti vegna þess að fara í mikið ferðalag á vegum skrifstofunnar. Búið var að bóka fyrir hana flugmiða á fyrsta farrými til sjö mismunandi borga en tveimur dögum fyrir brottför kom annarlegur ásettningur umboðsmannsins í ljós.
Þetta kom fram í viðtali við Örnu Báru í útvarpsþættinum Harmageddon í morgun. Hægt er að hlusta á viðtalið hér fyrir ofan.

Þá hafði umboðsmaðurinn bókað alla ferðina þannig að hann og Arna áttu að deila saman hótelherbergjum með einu tvöföldu rúmi.
„Ég átti bara að vera þakklát fyrir það sem hann var að gera fyrir mig, en ég sagði honum bara að ég væri ekki hóra, ég gæti komið út sem fagmanneskja en þetta kæmi ekki til greina.“ Sagði Arna og bætir því við að í kjölfarið á þessu hafi umboðsmaðurinn kerfisbundið byrjað að eyðileggja fyrir henni.
„Hann er búinn að loka fyrir mér fullt af dyrum með því að setja sig í samband við alla þá sem ég var í leiðinni í myndatökur hjá næstu mánuði,“ segir Arna sem ætlar þess vegna að byrja upp á nýtt og leita af nýjum tækifærum á Internationa Bikini Model Search and Paradise Bash í Cancun, Maxíkó í vetur.

„Ég er ekkert að fara að sofa hjá einhverjum fertugum feitum ameríkana, ekki séns.“