Skagamaðurinn Arnór Smárason hefur farið vel af stað með sínu nýja liði Helsingborg í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.
Íslenski landsliðsmaðurinn spilaði sinn þriðja leik með liðinu í gær eftir vistaskiptin frá Esbjerg. Helsingborg hafði unnið fyrri leikina tvo og stefndi í áframhald þegar Arnór kom liðinu í 1-0 á útivelli gegn Djurgården um miðjan fyrri hálfleikinn.
Markið skoraði Arnór með fallegu hægrifótarskoti utan teigs. Heimamenn sneru hins vegar við blaðinu og unnu nokkuð óvæntan 2-1 sigur á toppliðinu.
Markið hjá Arnóri má sjá með því að smella hér.
Arnór opnaði markareikninginn með glæsimarki | Myndband
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið









Njarðvík og ÍR upp í efstu sætin í Lengjudeildinni
Íslenski boltinn

Enn hærra metboð frá Liverpool
Enski boltinn