Toyota mun áfram smíða jeppa á grind Finnur Thorlacius skrifar 31. júlí 2013 08:45 Toyota Lnad Cruiser er smíðaður á grind og verður það áfram
Þeim jeppum sem smíðaðir eru á grind en ekki plötu (unibody) hefur farið svo mikið fækkandi á undanförnum árum að varla er lengur til sá bíll þar sem undir honum er alvöru grind. Margir þeirra þykja því vart neinir jeppar lengur, frekar ofvaxnir fólksbílar og til að mynda er ekki hægt að breyta slíkum jeppum eða hækka þá. Því mun margur jeppaáhugamaðurinn gleðjast yfir nýyfirlýstum áformum Toyota að hætta ekki að smíða nokkrar af bílgerðum sínum á grind þó svo sala þeirra hafi farið hnignandi á síðustu árum. Á þetta við bílana Land Cruiser, 4Runner, FJ Cruiser og Sequoia. Sem dæmi seldi Toyota aðeins 78.457 bíla af þessum fjórum gerðum í fyrra í Bandaríkjunum en Highlander jepplingurinn einn og sér seldist þar í 121.055 eintökum. Með þessari ágætu ákvörðun Toyota markar fyrirtækið sér sérstöðu því þekktir jeppaframleiðendur eins og Ford, General Motors og Chrysler eru svo til hættir að framleiða bíla á grind og standa aðeins bílarnir Ford Expedition og Chevrolet Tahoe/GMC Yukon eftir.
Mest lesið Vandasöm andlitslömun sem greinist vikulega á Íslandi Innlent Sviku út tugi milljóna með því að þykjast vera Brad Pitt Erlent Erfið umræða sem fólk hafi veigrað sér við að taka Innlent Þarf ekki að skerða heitt vatn í vetur vegna nýrrar borholu Innlent Ringulreið á lánamarkaði Innlent „Þetta er ekki átak til einhverra daga eða vikna“ Innlent Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Innlent Ein kært nauðgun og fjórar segjast hafa verið beittar ofbeldi Innlent Risavaxin mörgæs slær í gegn Erlent Situr undir gelti, urri og að vera kölluð api Innlent