Hóf þessi jepplingabylgjuna? 4. júlí 2013 13:15
Ætli japanski bílaframleiðandinn Subaru hafi gert sér grein fyrir því að framleiðsla þessa bíls árið 1978 myndi marka slík þáttaskil í framleiðslu bíla sem hann raunverulega gerði? Það er til efs en þar fór engu að síður fyrsti fjórhjóladrifni fólksbíllinn sem var hærri en venjulegir fólksbílar og ennfremur á hóflegu verði. Þessi bíll Subaru ruddi einnig brautina fyrir mjög vinsælar gerðir fyrirtækisins, þ.e. Subaru Legacy, Subaru Outback og Subaru Forester og svo má líka setja Subaru XV í þennan flokk bíla. Má nú segja að erfitt sé að finna bílaframleiðanda sem ekki hefur í vopnabúri sínu jeppling eða fjórhjóladrifinn hærri fólksbíl, sem ekki telst hreinræktaður jeppi. Þessi flokkur bíla hefur uppá enska tungu verið kallaðir Crossover eða CUV bílar og sá flokkur bíla hefur undanfarin ár verið sá sem vaxið hefur hraðast. Bíllinn á myndinni er enn í daglegri notkun, hefur verið ekið um 500.000 kílómetra. Er það til vitnis um ágæti þessara bíla sem margur Íslendingurinn þekkir vel, en þessi bílgerð seldist ágætlega hér á landi og hentaði íslenskum aðstæðum einkar vel.
Mest lesið „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Innlent Villta vestrið ríki á íþróttaviðburðum og kalla eftir reglum Innlent Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Erlent Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy Erlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Ísland geti orðið fyrirmyndarríki í fangelsismálum Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Borgin verði ítrekað af viðburðum vegna gjaldtöku Innlent