Hefur ekki við að framleiða ökuhæfa smábíla Finnur Thorlacius skrifar 25. júní 2013 11:45 Bæði fullorðnir og börn geta ekið bílunum
Nathan Redfearn hefur framleitt ökuhæfa smábíla í 9 ár og var við það að hætta framleiðslunni þar sem hún var bæði mjög tímafrek og óarðbær. Þá gerðist það að bílavefurinn jalopnik.com birti grein um þessa sætu bíla hans og daginn eftir voru 300 fyrirspurnir í pósthólfi hans. Nú framleiðir hann 8-10 bíla á mánuði, veitir 32 starfsmönnum vinnu og hefur ekki undan eftirspurninni. Þessi bílar hans eru eftirlíkingar af frægum sportbílum og eru um það bil helmingi minni. Samt kemst venjulegt fólk í þá, þrátt fyrir að upphaflega hafi hann smíðað þá fyrir börn. Honum fannst þeir plastbílar sem í boði voru fyrir börn glataðir og tók málin í sínar hendur. Hann smíðaði eftirlíkingu að Porsche 356 sportbílnum í heimaborg sinni Saigon í Víetnam og var bíllinn alger eftirmynd hans, smíðaður úr trefjaplasti, en fullkomlega ökuhæfur með litla vél. Smíði hans spurðist út og pantanir til tveggja ára bárust snögglega. Síðan minnkaði eftirspurnin og Redfearn gerði sér grein fyrir því að smíði hans skilaði litlu, en þá birtist fréttin á jalopnik.com. Bílarnir smáu eru með 110cc Honda vél sem kemur bílunum í 73 km hraða. Þeir eru ansi vel búnir, með Brembo diskabremsum, sjálfstæða fjöðrun á hverju hjóli, breiðar álfelgur, Rack and pinion stýringu, fullkomið mismunadrif og spólvörn. Vélin er að framan og afturhjóladrif eins og í sönnum sportbílum. Stilla má bæði sæti og pedalastöðu svo bæði börn og fullorðnir geti ekið bílunum. Nú er fyrirtæki Redfearn að hefja smíðí smábílaeftirlíkinga af bílunumAston Martin DB5, Jaguar XK120, Ferrari 250 California Spyder og AC Cobra. Hér sést stærð bílanna í réttu ljósi Undirvagn bílanna
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent