Balotelli með tvö mörk á móti Birki og félögum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2013 18:02 Mario Balotelli. Mynd/NordicPhotos/Getty
Mario Balotelli heldur áfram að raða inn mörkum í ítalska fótboltanum en hann skoraði tvö mörk í kvöld þegar AC Milan vann 4-0 útisigur á Birki Bjarnasyni og félögum hans í Pescara. Mario Balotelli hefur nú skorað 11 mörk í 11 deildarleikjum með AC Milan síðan að liðið fékk hann frá Manchester City í janúarglugganum. Mario Balotelli skoraði fyrsta mark leiksins á 10. mínútu úr vítaspyrnu og skoraði einnig fjórða markið á 57. mínútu eftir sendingu frá Mathieu Flamini. Mathieu Flamini kom AC Milan í 3-0 á 51. mínútu eftir sendingu frá Robinho sem lagði einnig upp annað markið fyrir Sulley Muntari á 33. mínútu. Birkir Bjarnason sat allan tímann á bekknum hjá Pescara í þessum leik en liðið er langneðst í deildinn og löngu fallið. AC Milan er 3 sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir Napoli (2. sæti) og sjö stigum á undan Fiorentina (4. sæti), Napoli og Fiorentina spila bæði seinna í kvöld. Þetta var í annað skiptið sem Mario Balotelli skorar tvö mörk í sama leiknum með AC Milan en hann hefur skorað að minnsta kosti eitt mark í átta af þeim ellefu deildarleikjum sem hann hefur spilað fyrir félagið.
Ítalski boltinn Mest lesið Missti öll tíu Ólympíuverðlaun sín í eldunum Sport Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Fótbolti Þjálfari Eriku Nóttar meyr eftir að hann sendi hana af stað í ævintýraferð Sport Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Fótbolti Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Enski boltinn Strákarnir hans Dags fóru illa með mótherja Íslands Handbolti „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Enski boltinn Það er ekki flugeldasýning í hverjum leik“ Sport Uppgjörið: Stjarnan-KR 94-86 | Stjörnumenn tóku aftur til sín toppsætið Körfubolti „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ Fótbolti Fleiri fréttir Hákon fiskaði víti og rautt í slökum leik Potter hent úr bikarnum í fyrsta leik Schick stjarnan í sterkum sigri Júlíus keyptur á meira eina milljón evra Hilmir Rafn gerði fjögurra ára samning við norsku Víkingana Freyr sagður vera með samningstilboð frá Brann Ungir strákar í HK halda styrktarleik fyrir veikan vin sinn Aldís Ylfa orðin landsliðsþjálfari fyrir þrítugsafmælið Áreittar af hópi manna eftir leikinn í Jeddah Í sex leikja bann fyrir að hrækja á mótherja MLS baðst afsökunar á tilkynningu um rangan Japana Isak bestur í desember „Hvar í fjáranum er þessi Íslendingur?“ „Liverpool tapar titlinum ef þessi vitleysa heldur áfram“ Diallo verðlaunaður með nýjum samningi Moyes hefur rætt við Everton Þjálfari sló niður ungan línuvörð en sleppur við fangelsi Everton endaði furðulegan dag á því að fara áfram í bikarnum Fá draumaúrslitaleik á milli Real Madrid og Barcelona Cristiano Ronaldo skoraði á 24. árinu í röð Marta spilar fram á fimmtugsaldurinn Starfsviðtöl að baki og nú þarf að ákveða sig Farnir að orða Mourinho við Everton starfið Everton rak Sean Dyche aðeins nokkrum klukkutímum fyrir leik Liverpool vill fá Kimmich Rooney bað Coleen á bensínstöð Högmo kom ekki í viðtal hjá KSÍ Alex Þór aftur í Stjörnuna „Mikilvægasta ráðning í langan tíma“ Reyna að lokka Arnór aftur til Svíþjóðar Sjá meira