Ari Freyr Skúlason var á skotskónum með Sundsvall þegar liðið lagði Varberg 4-0 í b-deild sænsku knattspyrnunnar í dag.
Ari Freyr kom gestunum í 2-0 með marki beint úr aukaspyrnu í viðbótartíma í fyrri hálfleik. Sundsvall bætti við tveimur mörkum í síðari hálfleik.
Sigurinn var sá fyrsti hjá Sundsvall á leiktíðinni eftir töp í fyrstu tveimur leikjunum.
Aukaspyrnumark hjá Ara Frey
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið


Gæti orðið dýrastur í sögu KR
Íslenski boltinn

Norsk handboltastjarna með krabbamein
Handbolti


Stjarnan staðfestir komu Caulker
Íslenski boltinn




