Óvenju kalt veður í vetur hefur valdið aflabresti hjá skoskum humarveiðimönnum. Það hefur svo aftur leitt til þess að verðið á humrinum hefur rokið upp.
Fjallað er um málið á vefsíðu BBC. Þar er vitnað í samtök skoskra skeldýraveiðimanna sem segja að aflinn við austurströnd Skotlands hafi dregist saman um allt að 90% frá því í fyrra. Vegna kuldans haldi humarinn sig til á hafi úti og sé ekki að finna á hefðbundnum miðuð þessa dagana.
Formaður fyrrgreindra samtaka segir í samtali við BBC að humarinn sé orðinn álíka sjaldgæfur og tennur í hænum. Þeir bíði nú óþolinmóðir eftir því að veður fari hlýnandi að nýju og að humarinn gangi á hefðbundnar slóðir sínar.
Verðið á humrinum hefur rokið upp eða úr 15 pundum á kílóið og í 25 pund enda er þessi humar mjög vinsæl matvara víða í Evrópu. Í venjulega árferði er verðmæti skoska humaraflans, og annarra skeldýra, um 39 milljónir punda eða um sjö milljarðar króna.
Aflabrestur hjá skoskum humarveiðimönnum, verðið rýkur upp

Mest lesið


Hefja viðskipti með bréf í Alvotech í Stokkhólmi
Viðskipti innlent

Þurfi að líta ofar í tekjustigann í næstu kjarasamningum
Viðskipti innlent

Óttast að háir vextir sogi sparnaðinn til Tenerife
Viðskipti innlent

Ráku framkvæmdastjórann og komust svo að rafmyntagreftrinum
Viðskipti innlent


Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu
Viðskipti innlent


