Audi quattro bílar á palli Finnur Thorlacius skrifar 12. apríl 2013 10:30
Audi A6 Allroad, A7 quattro, Q3 quattro, Q5 quattro og Q7 quattro sýndir. Á morgun, laugardag verður hægt að berja augum Audi Quattro bíla í sýningarsal Heklu að Laugavegi. Bílarnir sem til sýnis verða eru fólksbílarnir Audi A6 Allroad, A7 quattro, jepplingarnir Q3 quattro og Q5 quattro og jeppinn Q7 quattro. Opið verður milli 12 og 16 á morgun. Quattro fjórhjóladrifið kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 1980 þegar Audi afhjúpaði hinn goðsagnakennda Quattro, bílinn sem heillaði bílaáhugamenn heimsins upp úr skónum og skipaði Audi í fremstu röð bílaframleiðenda. Þó að hverri nýrri kynslóð hafi fylgt nýjar umbætur er hugmyndafræðin alltaf sú sama. Rétt eins og hemlabúnaður á hverju hjóli skilar sér í virkari hemlun tryggir sítengt aldrif á öllum hjólum skjótari viðbrögð og betra veggrip. Útkoman er öruggur og þægilegur akstur sem hentar ekki síst við misjafnar íslenskar aðstæður.
Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Innlent Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Innlent Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Innlent Geri málið tortryggilegt að neita að svara Innlent