Kenndi ökunemendum að gera “kleinuhringi” og var handtekinn Finnur Thorlacius skrifar 2. apríl 2013 10:10
Taldi slíka kennslu auka á hæfni nemenda að bjarga sér úr háska. Ökukennari nokkur í South Charleston í Virginíu taldi það bráðnauðsynlegan lærdóm hjá nemendum sínum að gera "kleinuhringi" en lögreglan var ekki sammála honum og handtók hann fyrir vikið. Kennarinn vill meina að ef nemendur sínir kunni að stjórna bíl sem skrikar til þá séu þeir hæfari og líklegri til að bjarga sér úr háskalegum aðstæðum síðar meir. Því lét hann nemendur sína skrika viljandi kennslubílnum og finna hreyfingar hans og ná fullri stjórn á honum þrátt fyrir hliðarskriðið. Skiptar skoðanir eru um það hvort athæfi ökukennarans réttlæti handtöku og vilja margir meina að ekkert sé sakhæft við kennslu hans, heldur þvert á móti sé hún einmitt góður undirbúningur fyrir óreynda ökumenn og til þess fallin að auka á hæfni þeirra og öryggi. Aðrir telja slíka kennslu hvetja unga ökumenn til kærulauss aksturslags. Ekki hefur enn fallið dómur í máli ökukennarans.
Mest lesið Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Innlent Flugmaður hjá Icelandair opnar bókhaldið Innlent Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Innlent Segir að honum hafi gengið illa að sofna vegna hræðslu Innlent Vaknaði við hávaða og raddir úr næsta herbergi Innlent Tvö á slysadeild eftir árás lausra hunda Innlent Myndataka í lágloftunum vekur athygli Innlent „Það þarf kjark til að viðurkenna mistök“ Innlent „Andrúmsloftið er þungt og það eru allir slegnir“ Innlent Mótmælendur trufluðu þingfund Innlent