Jón Trausti nýr formaður Bílgreinasambandsins Finnur Thorlacius skrifar 22. mars 2013 11:45 Jón Trausti Ólafsson, formaður Bílgreinasambandsins og forstjóri Öskju
Tekur við af Sverri Viðari Haukssyni. Jón Trausti er forstjóri Öskju. Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Bílaumboðsins Öskju, var kjörinn formaður Bílgreinasambandsins á aðalfundi þess í dag. Jón Trausti hefur starfað í bílgreininni frá árinu 1998 og komið að sölu-, markaðs- þjónustu- og gæðamálum. Jón Trausti var áður markaðsstjóri Heklu en frá árinu 2010 hefur hann gegnt starfi framkvæmdastjóra Öskju, auk þess að vera stjórnarmaður í Bílgreinasambandinu frá árinu 2011. Jón Trausti útskrifaðist með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2011 og sem viðskiptafræðingur frá Viðskiptaháskólanum á Bifröst 2006. „Bílgreinasambandið er mikilvægur þáttur í uppbyggingu á öflugu þjónustu- og gæðastarfi bílgreinarinnar á Íslandi. Í dag eru yfir 100 fyrirtæki á landinu innan vébanda þess sem starfa á breiðum grundvelli bílgreinarinnar. Er þar um að ræða bílaverkstæði, bílasölur, bílaumboð, smurstöðvar, réttingaverkstæði og varahlutasala. Bílgreinasambandið hefur lagt mikilvæg lóð á vogarskálarnar undanfarin ár í uppbygginu á faglegri starfsemi bílgreinarinnar. Má þar nefna uppbyggingu gæðakerfa m.a. Gæðavottun BGS, stuðning við CABAS tjónamatskerfið, rekstur Bíló kerfisins, fræðslumál og fleira," segir Jón Trausti. Jón Trausti segir að hátt í 50 fyrirtæki séu með gæðavottun BGS og hefur trú á að þeim muni fjölga enn frekar á næstunni. ,,Framundan er áframhald á því uppbyggingarstarfi og ég hlakka til að takast á við þau verkefni með félagsmönnum Bílgreinasambandsins, með það að markmiði að auka enn á gæði og vegsemd bílgreinarinnar hér á landi," Segir Jón Trausti ennfremur. Hann tekur við formennsku af Sverri Viðar Haukssyni, sem leitt hefur Bílgreinasambandið frá árinu 2010.
Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Slapp vel þegar bíll hans valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Tuttugu drengir á Gothia Cup týndir Erlent