Ford Mustang Shelby – 1.200 hestöfl Finnur Thorlacius skrifar 24. mars 2013 08:45
Tölur um hröðun og hámarkshraða liggja ekki fyrir en eru á bilinu milli sturlunar og geðveiki. Rétt fyrir andlát Carroll Shelby kom út sérútgáfan Ford Mustang Shelby 1000, sem var rétt undir 1.000 hestöflum og löglegur á venjulegum götum. Flestir kaupendur þess bíls kusu að fórna götuleyfi hans en þá var hægt að fá hann með 1.100 hestöfl undir húddinu. Það er greinilega ekki nóg því nú á 50 ára afmæli Shelby skal gera enn betur og bjóða hann með 100 hestöflum öflugri vél, en samt löglegan á venjulegum götum. Vélin er 5,8 lítra V8 með hverfilblásara, en þeir hjá Shelby hafa reyndar bætt þessa þekktu Shelby vél á allan hugsanlegan hátt til að ná öllu þessu afli úr henni. Sex gíra ný sjálfskipting tengist við vélina og er hún 15% léttari en í hefðbundnum Mustang Shelby. Tölur um hröðun og hámarkshraða liggja ekki fyrir en eru einhversstaðar á bilinu milli sturlunar og geðveiki, enda þessi bíll orðinn fær um að leggja af velli Bugatti Veyron. Þessi afmælisútgáfa Ford Mustang Shelby mun kosta 209.990 dollara eða um 25 milljónir króna vestanhafs. Það er reyndar fimm sinnum ódýrara en Bugatti Veyron.
Mest lesið Hrindir af stað söfnun fyrir móður stúlkunnar sem lést í Suður-Afríku Innlent Naut aðstoðar samskiptasérfræðinga vegna veiðigjaldamálsins Innlent Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Erlent Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Erlent Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Erlent Málið sem Trump getur ekki losað sig við Erlent Varð vitni að ótrúlegum norðurljósum: „Mér fannst þetta magnað“ Innlent „Ég vil ekki nokkurn tímann sjá neitt svona aftur“ Innlent Færir nýársboðið fram á þrettándann Innlent Þau eru tilnefnd sem maður ársins Innlent