Hvernig er hægt að sleppa lifandi úr þessu? Finnur Thorlacius skrifar 20. mars 2013 00:01 Ökumaður bílsins enn í bílnum og slökkviliðsmenn reyna að ná honum út.
Lög um lágmarkshæð afturhluta vöru- og flutningabíla í Bandaríkjunum er 22 tommur. Fæstum þætti líklegt að ökumaður þessarar Corvettu hefði komist lífs af úr þessu slysi sem á myndinni sést. En snögg viðbrögð hans rétt fyrir áreksturinn við flutningabílinn, er hann lét sig renna niður eftir sætinu, komu í veg fyrir að hann væri nú höfðinu styttri. Það sem meira er, áverkar hans voru minniháttar. Slysið gerðist í nágrenni Los Angeles í þessum mánuði. Það kom í hlut slökkviliðsmanna að losa ökumanninn úr bílnum og tókst það ekki fyrr en flutningabíllinn hafði verið tjakkaður upp. Árið 1967 voru sett lög í Bandaríkjunum sem ákvörðuðu þá lágmarkshæð frá jörðu sem stuðarar flutninga- og vörubíla þurfa að hafa, eða 22 tommur frá jörðu. Voru lögin sett í kjölfar sviplegs dauða leikkonunnar Jayne Mansfield, en bíll hennar endaði einmitt undir vörubíl með of háan afturenda og klipptist eftri hluti bílsins af. Þrátt fyrir lögin hafa margir haft áhyggjur vegna sportbíla, sem eru lægri en venjulegir bílar og sannaðist það í þessu slysi þar sem húdd hans endar allt undir flutningabílnum.
Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent