Fiskar á þurru landi gerist á gistiheimili í litlu plássi út á landi en myndin er byggð á leikriti eftir Árna Ibsen. Handritið skrifuðu þeir Óskar Jónasson og Sjón en Óskar er enn fremur leikstjóri myndarinnar. Óskar er Íslendingum góðkunnur og hefur meðal annars leikstýrt sjónvarpsþáttaseríunum Pressa, Svartir englar og Stelpurnar.

Fjórir leikarar gæða persónur í Fiskar á þurru landi lífi. Það eru þau Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Sara Margrét Nordahl og Davíð Guðbrandsson.
Myndin er framleidd af Sagafilm, stærsta framleiðslufyrirtæki landsins á sviði sjónvarpsþáttagerðar, sjónvarpsauglýsinga, kvikmyndagerðar og viðburða. Sagafilm hefur framleitt margar verðlaunuðustu sjónvarpsseríur landsins eins og Vaktarseríurnar, Pressu, Rétt, Ástríði og Svarta engla sem og kvikmyndirnar Bjarnfreðarson og Köld slóð.
Sagafilm á Facebook.