„Flækjustigið er afar mikið en með góðu fólki þá gengur þetta upp,“ segir Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson í Todmobile.
Hljómsveitin heldur sína árlegu tónlistarveislu í Eldborgarsal Hörpu í kvöld. Henni til stuðnings verður kammersveitin sem sá um hljóðfæraleik í sýningu Þjóðleikhússins á Vesalingunum, auk fjörutíu manna kórs. Todmobile verður einnig fjölmennari en áður því slagverksleikarar, bakraddasveit, hljóðgervilsleikarar og fleiri aðstoða sveitina. Samanlagt verða um sjötíu manns á sviðinu þegar mest lætur.
Stífar æfingar hafa staðið yfir í Eldborg að undanförnu. „Að geta æft þetta í Eldborg og stillt af sándið með tæknifólkinu er gríðarlega mikilvægt,“ segir Þorvaldur Bjarni. „En svo það sé á hreinu þá er fólk ekkert að fara að mæta á einhverja 18. aldar kammertónleika. Við erum að „blasta“ Todmobile-rokkinu algjörlega. Rokkbandið verður stundum sér en stundum verður bara klassíska sveitin. Í stærstu lögunum, t.d. Betra en nokkuð annað, verðum við með rokksveitina, kammersveitina og svo fjörutíu manna kór.“
Þorvaldi Bjarna líkar vel við Eldborg en Todmobile spilaði þar í fyrsta sinn í fyrra. „Þetta er svolítið okkar heimavöllur. Þetta er akkúrat stærðin sem hentar okkur rosalega vel.“ Nokkrir miðar eru eftir á tónleikana og fást þeir á Harpa.is og Midi.is.- fb
Sjötíu manna Todmobile-rokk
