Bjóða eitt mesta úrvalið af hillum og skápum 25. október 2012 16:50 Ofnasmiðjan hefur verið starfrækt í nærri 75 ár. Thomas Möller hagverkfræðingur er framkvæmdastjóri. mynd/gva
Um 1.250 fyrirtæki á Íslandi nota lausnir frá okkur,“ segir Thomas Möller, verkfræðingur og framkvæmdastjóri fyrirtækisins. „Við erum með þá sérstöðu að fyrirtækin hafa samanlagt yfir 100 ára reynslu af ráðgjöf og sölu á hillukerfum, lagerlausnum, flutningatækjum og lyfturum.“ Thomas tekur fram að nauðsynlegt sé að ráðgjöfin nái yfir allar lausnir sem lagerinn þurfi og tengi þær saman. Til dæmis verði að taka fullt tillit til þess hvaða lyftaratækni sé notuð þegar hillukerfið sé valið. Fyrirtækið er með sýningarsal að Brautarholti 26 í Reykjavík Þar er fyrirtækið með tvo sýningarsali, lager, skrifstofur og verkstæði. Alls starfa níu manns hjá fyrirtækinu, allir með langa reynslu á þessu sviði. Flestir starfsmanna hafa starfað hjá fyrirtækjum sem nota hillukerfi, skjalaskápa og lyftara og þekkja því báðar hliðar þessarar tækni. Saman bjóða fyrirtækin nú enn betri þjónustu og stærra vöruval en áður RÍ og Rými býður heildarlausnir fyrir verslanir, vörugeymslur, skjalageymslur, iðnfyrirtæki, verkstæði, fiskiðnaðinn, hótel, bókasöfn, skrifstofur, sveitarfélög og skóla ásamt víðtækum lausnum í aðgengismálum fyrir fólk með hreyfihömlun. Allur pakkinn á einum stað! RÍ og Rými býður þannig heildarlausnir á öllum sviðum geymslumála, þar með talið ráðgjöf, hönnun, smíði, uppsetningar, viðgerðir og fyrirbyggjandi viðhald varðandi allar vörur og lausnir sem það selur. Í vörulista fyrirtækisins er að finna hillu- og rekkakerfi fyrir allar vörur, verslunarhillur fyrir allar verslanir, starfsmanna- og munaskápa, verkfæraskápa og varahlutahillur svo og allar tegundir rafmagnslyftara og brettatjakka auk flutningatækja til innanhússflutninga og vörudreifingar. Einnig eru til sölu hjá RÍ og Rými úrval af vörulyftum, sjálfvirkar hurðir og rafknúnar hurðarpumpur auk iðnaðarhurða og hurðaopnara fyrir verslanir og iðnfyrirtæki. Fyrirtækið sérhæfir sig auk þess í hvers kyns hillum og skápum fyrir skjöl og önnur verðmæti. Það býður skjalaskápa af öllum stærðum, skjalakerfi og skjalavörslumöppur, eldtrausta skápa fyrir skjöl og muni.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira