Spelkan kemur í stað hnéaðgerðar 4. október 2012 10:05 Jón Hjaltalín Magnússon mælir með notkun hnéspelkunnar Unloader One frá Össuri. Spelkan frá Össuri er einföld og þægileg. Hún veitir stuðning, dregur úr sársauka og eykur hreyfanleika hjá notanda. mynd/daníel
Jón Hjaltalín Magnússon, verkfræðingur og fyrrverandi landsliðsmaður í handbolta, hefur undanfarin ár notað „Unloader One"-hnéspelkuna frá Össuri með góðum árangri.Í stað aðgerðar „Brjóskið í hægra hnénu á mér er alveg uppurið, þar er bara bein í bein," segir Jón. „Fyrir fjórum árum síðan fór ég að finna fyrir óþægindum og verkjum í hnénu og fór í liðþófaaðgerð þar sem stærsti hluti liðþófans var fjarlægður. Í kjölfarið kom í ljós að brjóskeyðing í hnénu var einnig mikil. Stefán Carlsson bæklunarlæknir ráðlagði mér að prófa fyrst Unloader-spelkuna frá Össuri og að fá innlegg í skóinn því fóturinn er líka styttri. Ég hef notað spelkuna frá því árið 2010 og hún hefur hjálpað mér verulega."Eykur hreyfanleika Unloader One-hnéspelkan veitir stuðning og minnkar verki og gerir notendum kleift að ganga með hana allan daginn. Í Unloader One-spelkunni eru tveir borðar sem létta álagi af slitnum liðflötum og auðvelda fólki með verki í hnjám að stíga í fótinn. Borðarnir aðlagast hreyfingum sem gerir það að verkum að álagið flyst af slitna liðfletinum yfir á þann heila. Notendur Unloader One-spelkunnar svitna síður af henni en öðrum sambærilegum hnéspelkum. Sá hluti spelkunnar sem liggur næst húðinni er gatað sílikon sem hleypir lofti í gegn og gerir húðinni kleift að anda vel. Unloader One-spelkan er árangur margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu Össurar.Einföld og þægileg Nýlega fékk Jón nýja útgáfu af Unloader One sem hann lætur vel af. Það er auðvelt að koma Unloader-spelkunni á sig og hún er bæði einföld og þægileg í notkun. Hún passar undir buxurnar án þess að móti fyrir henni. „Ég finn afskaplega lítið fyrir spelkunni og hún truflar mig ekki neitt. Hún léttir þrýstingi af hnénu og styður við það þannig að ég á mun auðveldara með gang. Eftir að ég fékk nýju spelkuna hef ég haft hana á mér nánast allan daginn, hún er mjög þægileg," segir hann. „Spelkan vinnur eins og hnédeyfir, svipað og höggdeyfar (demparar) bíla."Finn ekki lengur til Jón er mörgum kunnur sem formaður HSÍ um margra ára skeið en hann segir sposkur á svip að hann hafi stundað handbolta fyrir fjörutíu árum og fjörutíu kílóum síðan, en hann var einn af „strákunum okkar" á Ólympíuleikunum í München 1972. „Ég vil ekki kenna handboltanum um þessi hnévandamál mín, slapp algjörlega við meiðsli í honum, heldur miklu frekar yfirþyngd (1/10 úr tonni!) sem ég safnaði á mig eftir að ferlinum lauk. Nú er ég að reyna að létta mig til að minnka álagið á hnén. Eftir að ég fékk spelkuna fer ég mun oftar í lengri göngutúra og hef gaman af og léttist um leið. Áður veigraði ég mér við að fara í göngutúra, enda hafði ég enga ánægju af þeim því þeir reyndu svo á fæturna. Þá rýrna vöðvar í fótum sem ekki er gott, því vöðvarnir styðja við liðböndin í hnjánum. Ég fann aðallega til í vinstra lærinu enda farinn að færa álagið yfir á þann fót þegar hægra hnéð var orðið svo slæmt, en sjúkraþjálfari minn hefur leiðbeint mér til að laga það. Eftir að ég fór að nota spelkuna frá Össuri finn ég ekkert til lengur og mæli eindregið með því að fólk með hnjávandamál ræði við lækni sinn um að sækja um spelkuna í stað þess að fara í aðgerð."
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira