Manneskjan sett í öndvegi 4. október 2012 10:05 Kristján Hjálmar Ragnarsson er í rauðum bol lengst til vinstri. Hér er hann með samstarfsfólki sínu í Sjúkraþjálfun Kópavogs. mynd/vilhelm
Við leggjum mikla áherslu á mannhelgi og setjum skjólstæðinga okkar í öndvegi," segir Kristján Hjálmar Ragnarsson, sjúkraþjálfari og annar eigenda Sjúkraþjálfunar Kópavogs.Hann segir sjúkraþjálfun ganga út á að bæta færni og lífsgæði. „Sérhæfing sjúkraþjálfara byggir á greiningu vandamála í stoðkerfi og meðferðaráætlunum til lengri eða skemmri tíma. Þannig bætum við ástand skjólstæðinga okkar og aukum vinnufærni þeirra," útskýrir Kristján.Fagmennska Í Sjúkraþjálfun Kópavogs starfa tólf sjúkraþjálfarar, þar af níu sérhæfðir í liðfræðum, sem er meðferð á hrygg og liðum. „Hornsteinn sjúkraþjálfunar sem hér er lögð til miðast við að skjólstæðingar okkar séu virkir í þeirri markmiðasetningu og þróun sem verður í framhaldinu," segir Kristján. Í Sjúkraþjálfun Kópavogs leita einstaklingar aðstoðar vegna minniháttar, meiriháttar eða krónískra vandamála. Nákvæm greining „Sérstaða Sjúkraþjálfunar Kópavogs felst í nákvæmri greiningu og áætlun um samstarf sjúkraþjálfara og skjólstæðings í upphafi. Við skilgreinum vel hvers vegna fólk kemur og hvert við ætlum saman. Eftir nákvæma skoðun sjúkraþjálfara er lögð niður áætlun og æfingaplan í samstarfi við skjólstæðinginn því við erum sannfærð um að skorti upp á sjálfshjálp einstaklingsins verði árangurinn ekki jafn góður," segir Kristján. Lífsgæðin í húfi Í Sjúkraþjálfun Kópavogs er aðbúnaður og tækjakostur eins og best verður á kosið. Í lok október opnar æfingasalurinn eftir stækkun og sjúkraþjálfarar starfa í lokuðum herbergjum sem tryggja einrúm og næði. „Flestir fara til sjúkraþjálfara þegar eitthvað bjátar á og truflar þá í lífinu; þegar stoðkerfi líkamans veldur óþægindum. Íþróttafólk kemur á fyrirbyggjandi forsendum til að sjá hvort misvægi sé í stoðkerfinu sem grípa þurfi inn í strax," útskýrir Kristján. Hann segir mikilvægt að fólk átti sig á heildrænum áhrifum misvægis eða misálags í skrokknum því þau hafi áhrif á færni, vinnugetu og lífsgæði. „Heildartenging við daglegt líf, umhverfi og aðstæður skiptir máli því það er ekki bara handleggur sem kemur í meðferð heldur heil manneskja. Hana umgöngumst við af virðingu og horfum á hlutina í heild en stundum þarf að opna augu fólks fyrir því að misvægi sé farið að trufla líf þess meira en það áttar sig á. Þá er ekki nóg að fara í vikulega meðferð til sjúkraþjálfara heldur þarf viðkomandi að breyta til á öllum vígstöðvum." Sjúkraþjálfun Kópavogs er í Hamraborg 12, 2. hæð. Sjá nánar á sjk.is.
Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira