UNA annast húð þína af alúð 21. september 2012 11:00 Ingunn Jónsdóttir er ferskt og náttúrulegt andlit Una-húðvaranna.
Una er kvenlegt, fagurt og einfalt nafn sem þýðir einstök. Það hæfir einkar vel andlitskremum sem eru einstök á heimsvísu,“ segir Hörður G. Kristinsson framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Marinox og rannsóknarstjóri í líftækni og lífefnum hjá Matís. Í byrjun sumars kynnti Marinox ný íslensk andlitskrem undir heitinu Una. Kremin byggja á umfangsmiklum rannsóknum á lífefnum úr íslenskum sjávarþörungum og eru frá grunni byggð á íslensku hugviti. "Við höfum á undanförnum árum rannsakað lífefni í náttúru Íslands og þá aðallega hafinu. Við höfðum áhuga á að auka nýtingu hráefnis sem fellur til við fiskvinnslu og skoðuðum einnig þang og þara sem vex í miklu magni við Íslandsstrendur. Nýting á sjávarþörungum er lítil sem engin hér á landi en nágrannaþjóðirnar skapa úr þeim mikil verðmæti í snyrtivörum, matvælum og fæðubótarefnum,“ útskýrir Hörður. Hann segir margar mismunandi tegundir sjávarþörunga vaxa í hafinu í kringum Ísland. "Í rannsóknum á íslensku þangi komumst við að því að íslenskt bóluþang stendur upp úr þegar kemur að virkni andoxunarefna. Þá kom á daginn að magn þeirra í íslensku bóluþangi er meira en við höfum áður kynnst í okkar rannsóknum og virkni þeirra miklum mun öflugri en í öðrum þekktum andoxunarefnum eins og C-vítamíni, E-vítamíni og grænu tei,“ upplýsir Hörður um rannsóknir Matís á hreinu íslensku hafi sem nú nýtist öðrum til góða í Una-húðvörum. "Stefna okkar í Marinox er að oftína ekki þangið heldur nýta það á sjálfbæran hátt þannig að við getum alltaf gengið að nýju þangi vísu. Því förum við í fjöruferð og handtínum þangið á gamla mátann til að viðhalda virkni þess. Við höfum sömuleiðis fundið töluverðar sveiflur í innihaldi eftir svæðum og árstíðum og kortlagt besta árstímann til að nýta þangið,“ útskýrir Hörður. Hörður segir ekki nógu áhrifaríkt að mala þurrkað þang og setja í snyrtivörur eins og tíðkast hefur hjá snyrtivöruframleiðendum hingað til. "Að baki Una-krema er margra ára þróunarvinna og við einangrum lífræn efni bóluþangsins með háþróaðri aðferð sem tryggir hámarksvirkni þeirra.“ Efniviður Una-húðvara er í hvívetna fyrsta flokks. Í kremunum eru einnig lífvirkar sykrur sem hafa þekkt jákvæð áhrif á húðina, ásamt steinefnum, amínósýrum og vítamínum sem öll stuðla að heilbrigðu útliti húðar. Ellikerlingu vísað á brottHörður G. Kristinsson og Rósa Jónsdóttir fagstjóri hjá Matís hafa staðið saman að rannsóknum á sjávarþörungum. Þau eru bæði meðal eigenda Marinox ehf. "Viðlíka andlitskrem er ekki til í heiminum,“ segir Hörður. "Á heimsvísu er mikil eftirspurn eftir kremum sem innihalda þang, draga úr öldrun húðar og koma úr hafinu. Það sameinast allt í þessu eina kremi,“ upplýsir Hörður um Una-húðvörurnar sem hafa fengið fádæma góðar viðtökur heima og í útlöndum. "Kremin voru prófuð á báðum kynjum í þremur umfangsmiklum notendaprófum. Niðurstöður voru framúrskarandi; yfir 95 prósent notenda sögðust eindregið mæla með kremunum við aðra og yfir 90 prósent sáu marktækan mun á húð sinni og sjáanlega jákvæð áhrif á línur og hrukkur,“ útskýrir Hörður. Una-húðvörur eru sérhannaðar til að koma í veg fyrir og draga úr áhrifum öldrunar í andliti. Dag- og næturkrem vinna best saman en Hörður segir virkni í næturkreminu meiri og að óhætt sé að nota næturkremið að degi til. "Notendapróf fóru fram á köldustu vetrarmánuðum. Niðurstöður sýndu að kremin henta íslenskum vetrarskilyrðum einstaklega vel og níu af hverjum tíu sögðu kremin uppfylla rakaþörf húðarinnar. Innihaldsefni í þörungaseyðinu virðast draga úr bólgum í húð, roða, exemi og frunsum. Una-húðvörur henta jafnt körlum sem konum.“Náttúruleg fegurð húðarUna-húðvörur eru í loftheldum umbúðum til að vernda dýrmæt og virk innihaldsefnin.Una-húðvörur samanstanda af endurnærandi dagkremi og uppbyggjandi næturkremi sem henta öllum húðgerðum.Dagkremið er áhrifaríkt og veitir húðinni sterka andoxandi vernd. Það kemur í veg fyrir og dregur úr fínum línum og hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu og unglegu útliti.Kröftugt næturkremið inniheldur mikið af lífvirkum efnum sem næra húðina á nóttunni. Það hjálpar til við að byggja upp húðina og kemur í veg fyrir og dregur úr fínum línum og hrukkum. Næturkremið inniheldur mikið magn andoxunarefna úr sjávarþörungum og önnur lífvirk efni sem magna upp áhrif kremsins.Una-húðvörur innihalda íslenskt bóluþang sem býr yfir öflugum andoxunarefnum.- Una er án litar-, ilm- og parabenefna. - Una er án erfðabreyttra efna. - Una inniheldur lífvirk efni unnin úr íslenskum sjávarþörungum. - Una afvirkjar slæmar hvarfeindir sem hafa neikvæð áhrif á húðfrumur. - Una er ekki prófað á dýrum. - Una er endurnærandi og uppbyggjandi fyrir húðina. - Una er íslensk þróun og framleiðsla. - Una veitir vernd gegn umhverfismengun. - Una vinnur gegn og dregur úr öldrunaráhrifum á húð. - Una styrkir og nærir húðina með náttúrulegri vörn. - Una varðveitir náttúrulega fegurð húðarinnar. - Una bætir raka húðarinnar. - Una inniheldur lífvirk efni sem hafa mikla andoxunarvirkni
Heilsa Mest lesið Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Viðskipti erlent Fleiri fréttir Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Gluggi er ekki bara gluggi Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Sjá meira