Píkuprump og logandi sleipiefni Sigga Dögg skrifar 22. júní 2012 17:00 Kynlíf er ógeðslega fyndið. Pældu aðeins í því; píkuprump, rassaprump, sogblettur á hökunni, sleipiefni sem fær kynfærin til að loga, stuna sem vekur nágrannana, kjálki sem smellist í og úr lið, smokkur með væmnu gervibragði, skapahár á tungunni, týndur lykill að handjárnum, elskhugi sem vill láta öskra nafn sitt, blautur blettur í rúminu og svo typpi sem missir reisn. Þá eru sumar stellingar sérstaklega krefjandi og til þess fallnar að annar, eða báðir, fái krampa í einhvern líkamslim. Ég gæti haldið endalaust áfram (hefurðu fengið sæðisskot í hárið?). Það tala alltof fáir um hvað kynlíf er fyndið, vandræðalegt og skemmtilegt. Bestu partísögurnar eru oftar en ekki af sprenghlægilegum kynlífsatvikum. Kannski er þetta hluti af sjálfstrausti og því að hafa húmor fyrir sjálfum sér. Þú þarft að geta leyft þér að hlæja og hafa gaman. En ekki gleyma því að þetta er ekki spurning um að hlæja að einhverjum, heldur að hlæja saman, hvort að öðru. Það er ógeðslega fyndið að gleyma að lesa aftan á pakkann af fljótandi latexti og smyrja svo heilan líkama með efni sem harðnar við smurningu og gerir það að verkum að viðkomandi er fastur í þeirri stellingunni sem hann var í. Nema þá að hann njóti þess að láta toga í hvert einasta líkamshár. Svo er það bláa gúmmítyppið sem angar af bláberjum og líkamsvessum elskhuganna. Tíminn er knappur og eigandi þess fálmar eftir því í myrkri sængurinnar, til þess ná að binda hnút á sleipann endann áður en upp kemst um tapaða fullnægingu og limurinn hverfur aftur til síns upprunalega krumpaða ástands. Ég er sífellt að hamra á mikilvægi samskipta í samböndum og kynlífi. Kímnigáfa er eitt af lykilatriðum góðra samskipta og því ein af undirstöðum góðrar bólfimi. Það gerist ýmislegt í kynlífi og húmor léttir andrúmsloftið. Húmor auðveldar einnig alls kyns tilraunstarfsemi, en það er einmitt kryddið sem mörg langtímasambönd þurfa á að halda. Þannig getur kómísk kynlífsreynsla orðið að handriti fyrir pör sem vilja prufa að klæmast. Hlátur getur aukið nánd pars og styrkt tengslin á milli þeirra. Það er fátt jafn einlægt og að hlæja saman og búa til minningu sem þið getið vermt ykkur við á köldum vetrardegi. Bara eitt, það getur verið viðkvæmt að segja nýja elskhuganum frá fyrri afrekum í bólfimi og gildir sú regla einnig um kómískt kynlíf. Leyfðu þér að stunda kynlíf með bros á vör og hlátur í hjarta og heila. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigga Dögg Mest lesið Geðþóttaákvörðun barna- og menntamálaráðherra? Kristín Björnsdóttir Skoðun Nýtt mat AGS á upptöku evru fyrir Ísland Dagur B. Eggertsson Skoðun Til hvers erum við að breyta námsmatinu? Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Sleggjudómar ráðherra Sveinn Óskar Sigurðsson Skoðun Þegar sumarnámskeið eru ekki raunhæfur valkostur Aldís Sif Bjarnhéðinsdóttir Skoðun Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun Já til að sjá er af og frá Ólafur Hannesson Skoðun Af hverju segi ég nei í lok ágúst? Steingrímur J. Sigfússon Skoðun Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson Skoðun Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir Skoðun
Ísland hefur borgað meira í vexti en Grikkland og Ítalía síðustu 25 ár Egill Almar Ágústsson Skoðun
Ísland er í 1. sæti heims á lífskjaravísitölu SÞ - yrði hagur okkar raunverulega betri innan ESB? Elísabet Gísladóttir Skoðun