Fyrsta skrefið er hjá Dekkjasölunni 11. apríl 2012 11:00 Valdimar að yfirfara gæði dekkja og taka myndir fyrir heimasíðuna dekkjasalan.is mynd/Stefán
Dekkjasalan í Hafnarfirði er eina umboðssalan hérlendis með notuð dekk og felgur. Í gegnum tíðina hefur mikið magn af dekkjum og felgum safnast saman hjá fólki í geymslum og bílskúrum um allt land. Síðustu tvö árin hefur Dekkjasalan starfrækt umboðssölu þar sem fólk getur komið með dekkin og felgurnar, gert umboðssölusamning og starfsmenn sjá um söluna. Andvirði vörunnar er svo lagt inn á reikning söluaðilans að frádregnum sölulaunum. Valdimar Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Dekkjasölunnar, segir þetta fyrirkomulag spara mikinn tíma og vinnu fyrir bæði seljendur og kaupendur. „Um leið aukast líkur á að vörurnar seljist og segja má að kaupendur séu mun betur tryggðir fyrir því að fá þær vörur í hendurnar sem þeir leita að, þegar horft er til gæða og verðs."Allar vörur yfirfarnar Hann segir starfsmenn Dekkjasölunnar leggja mikla áherslu á að fara vel yfir þær vörur sem berast í hús og að hafa allar lýsingar á heimasíðunni réttar. ,,Þannig sjáum við til þess að varan standist væntingar, sé örugg og í lagi," segir Valdimar. Hann segir allar felgur yfirfarnar og dekkin líka og þau mæld og verðlögð í samræmi við gæði. Felgurnar eru allar settar á vél þar sem yfirfarið er hvort þær séu skakkar eða á þeim aðrir áverkar sem gera þær ósöluhæfar. Þegar þessu ferli er lokið eru teknar myndir af vörunni og hún sett inn á heimasíðu fyrirtækisins, dekkjasalan.is. Þar er hægt að skoða allar vörur og nánari lýsingar á þeim, til dæmis gerð, tegund, verð, dýpt munsturs og fleira.Vefurinn í stöðugri uppfærslu Valdimar segir mörg dæmi um að nýleg og góð vara sé í umboðssölu hjá þeim á mjög hagstæðu verði. Fyrsta skrefið við hagkvæm dekkjakaup ætti því að vera að setja sig í samband við Dekkjasöluna. Fyrirtækið býður einnig upp á ný dekk í flestum stærðum og gerðum á samkeppnishæfu verði. Heimasíða Dekkjasölunnar er uppfærð reglulega með nýjum vörum. Það þýðir að á hverjum morgni eru allar vörur til hjá Dekkjasölunni sem eru auglýstar á heimasíðunni. Vöruhús Dekkjasölunnar er að Dalshrauni 16 í Hafnarfirði og er opið frá kl. 8.00-18.00 virka daga og frá 10.00-16.00 á laugardögum. Síminn er 587-3757. Einnig er hægt að hafa samband gegnum tölvupóst á netfanginu dekkjasalan@dekkjasalan.is.
Mest lesið Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Viðskipti innlent Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Viðskipti innlent Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Viðskipti innlent Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Viðskipti innlent Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Viðskipti innlent Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Viðskipti innlent Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Viðskipti innlent Methagnaður norska olíusjóðsins Viðskipti erlent 50+ konur eru framtíðin fyrir gjörbreyttan vinnumarkað Atvinnulíf Fleiri fréttir Drægnitölurnar komu út í plús Greiðsluáskorun Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Bylgjan slær enn met í hlustun Á bak við stórar framkvæmdir eru stórar vélar Sjá meira